Íslenski boltinn

Stúku-menn glöddust yfir því að Brynjólfur komst loks á blað

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Brynjólfur Andersen í leik gegn HK fyrr í sumar.
Brynjólfur Andersen í leik gegn HK fyrr í sumar. vísir/bára

Brynjólfur Andersen Willumsson skoraði sín fyrstu mörk í Pepsi Max deildinni í sumar er Breiðablik vann 4-2 sigur á Víkingum í síðustu umferð. Skoraði hann tvö mörk í leiknum en bæði komu af vítapunktinum.

Eftir sigurinn eru Blikar í 3. sæti deildarinnar með 17 stigen betri markatölu en KR og FH sem koma í sætunum þar á eftir. 

„Við höfum nú rætt hann í þessum þáttum. Það vantar mörk, mörk, mörk til að við getum sett hann í einhvern klassa af leikmönnum. Þau komu í gær og þó þau hafi komið af vítapunktinum þá eru þetta víti sem hann sækir sjálfur,“ sagði Gummi Ben, þáttastjórnandi Pepsi Max Stúkunnar um mörk Brynjólfs gegn Víkingum.

Atli Viðar Björnsson, fyrrum markamaskína og sérfræðingur Pepsi Max Stúkunnar, var mjög hrifinn af því sem hann sá frá Brynjólfi í leiknum.

„Hann var virkilega góður í gær sem fremsti maður og var mjög ógnandi. Var í færum og náði í þessu tvö víti.“

„Gaman að hann sé kominn á blað og vonandi léttir það á kallinum þó hann hafi sagt það sjálfur að honum væri slétt sama,“ bætti Máni Pétursson, hinn sérfræðingur þáttarins, við.

Gummi og Atli Viðar voru svo sannfærðir um að þessi mörk muni aðeins hjálpa Brynjólfi og auka sjálfstraust hans. Þá skiptir það engu máli hvort mörkin komi af vítapunktinum eður ei, svo lengi sem þau koma.

Umræðu Stúkunnar sem og myndbrot úr leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Loks skoraði Brynjólfur Andersen



Fleiri fréttir

Sjá meira


×