Erlent

Blaða­konu vikið frá störfum eftir tíst um nauðgunar­mál Kobe Bry­ant

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kobe Bryant lést í þyrluslysi í Los Angeles á sunnudagsmorgun. Dóttir hans, Gianna Bryant, lést einnig í slysinu, sem og sjö aðrir.
Kobe Bryant lést í þyrluslysi í Los Angeles á sunnudagsmorgun. Dóttir hans, Gianna Bryant, lést einnig í slysinu, sem og sjö aðrir. Vísir/getty

Blaðamanni bandaríska dagblaðsins Washington Post var vikið frá störfum eftir að hún birti tíst um bandaríska körfuboltamanninn Kobe Bryant strax í kjölfar fregna af andláti hans. Aðrir blaðamenn Washington Post hafa gagnrýnt ákvörðun blaðsins harðlega.

Sjá einnig: Sveimuðu um í tólf mínútur áður en flug­maðurinn fékk leyfi til að halda á­fram í mikilli þoku

Blaðamaðurinn, Felicia Sonmez, birti á Twitter-reikningi sínum á sunnudag hlekk á grein Daily Beast um Bryant, þar sem fjallað er ítarlega um ásakanir á hendur honum um kynferðisofbeldi árið 2003. Á sama tíma kepptust netverjar við að minnast Bryant, sem fórst í þyrluslysi ásamt dóttur sinni og sjö öðrum í Los Angeles á sunnudagsmorgun.

Líflátshótanir frá reiðum netverjum

Í frétt New York Times segir að Sonmez hafi fengið tölvupóst frá Martin Baron, ritstjóra Washington Post síðdegis á sunnudag, þar sem hann bað hana um að hætta að tísta á umræddan hátt um Bryant. Hún hafi með tístunum sýnt af sér mikið dómgreindarleysi og skaðað orðstír blaðsins.

Felicia Sonmez, blaðamaður Washington Post.Twitter

Tíst Sonmez vakti jafnframt mikla reiði meðal samfélagsmiðlanotenda, sem margir sendu henni líflátshótanir. Sonmez birti síðar skjáskot af tölvupósti frá óbreyttum netverja, sem kallaði hana öllum illum nöfnum. Á skjáskotinu mátti einnig sjá fullt nafn þess sem sendi póstinn.

Í færslu sinni ítrekaði Sonmez að umrædd umfjöllun um Bryant hefði verið skrifuð fyrir þremur árum og að sjálf væri hún ekki höfundurinn.

Sonmez eyddi að endingu tístum sínum um málið, alls þremur, að ósk annars ritstjóra hjá blaðinu. Þá var henni í kjölfarið vikið tímabundið frá störfum. Í yfirlýsingu frá ritstjóranum segir að Washington Post skoði nú hvort tíst hennar brjóti í bága við samfélagsmiðlastefnu blaðsins. Þau hafi jafnframt grafið undan starfi samstarfsfélaga hennar.

Skylda blaðamanna að segja sannleikann

Margir af umræddum samstarfsfélögum Sonmez, alls yfir 200 talsins, skrifuðu hins vegar undir yfirlýsingu þess efnis að illa hafi verið staðið að meðferð málsins.

„Felicia fékk yfir sig holskeflu af ofbeldisfullum skilaboðum, þar á meðal hótunum sem höfðu að geyma heimilisfang hennar. […] Í stað þess að vernda og taka upp hanskann fyrir blaðamann sem stóð frammi fyrir ofbeldi, sendi [ritstjórn Washington Post] hana í tímabundið leyfi frá störfum,“ segir í yfirlýsingu blaðamannanna.

Þá kemur þar fram að andlát Bryant sé vissulega harmleikur. Það sé hins vegar skylda blaðamanna að segja allan sannleikann, hvenær sem er og um hvern sem er, óháð vinsældum viðkomandi og tímasetningu.

Kobe Bryant var handtekinn árið 2003 eftir að starfsmaður hótels í Colorado-ríki í Bandaríkjunum sakaði hann um að hafa nauðgað sér. Ákæra á hendur honum var látin niður falla tveimur árum síðar og samkomulag náðist við meintan þolanda.

Bryant sagði í yfirlýsingu um málið á sínum tíma að hann hefði talið að hann hefði fengið samþykki konunnar áður en þau stunduðu kynlíf. Hann væri hins vegar meðvitaður um að konan hefði ekki verið á sama máli.


Tengdar fréttir

WNBA stjörnur um Gigi Bryant: „Hún var framtíðin“

Fráfall Kobe Bryant var mikið áfall fyrir alla körfuboltaáhugamenn en bestu körfuboltakonur heims sáu líka fyrir sér mikla og stóra framtíð fyrir þrettán ára dóttur hans Gianna Bryant eða Gigi eins og hún var alltaf kölluð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×