Kolbeinn lék sinn fyrsta leik í rúman mánuð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. ágúst 2020 19:02 Kolbeinn Sigþórsson er kominn aftur á ferðina eftir meiðsli. getty/Michael Campanella
Kolbeinn Sigþórsson lék sinn fyrsta leik fyrir AIK í rúman mánuð þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Östersund á heimavelli, 0-1, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Kolbeinn hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur en er nú klár í slaginn og kom inn á sem varamaður í hálfleik í kvöld. Þetta var fyrsti leikur hans síðan í 1-0 tapi AIK fyrir Göteborg 2. júlí. AIK gör ett byte i paus: Henok Goitom ut, Kolbeinn Sigþórsson in.46 | #AIKÖFK | 0 1 pic.twitter.com/pHQQPrxkJt— AIK Fotboll (@aikfotboll) August 13, 2020 AIK hefur gengið illa á tímabilinu og er í 14. sæti deildarinnar með þrettán stig. Liðið hefur ekki unnið leik í mánuð. Hammarby vann dramatískan sigur á Norrköping, 1-2, á útivelli. Aron Jóhannsson var í byrjunarliði Hammarby sem náði forystunni á 16. mínútu með marki Kalles Björklund. Lars Gerson jafnaði fyrir Norrköping úr vítaspyrnu á 51. mínútu. Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á sem varamaður í liði Norrköping á 66. mínútu. Ellefu mínútum síðar átti hann skot í slá. Þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Abdul Khalili sigurmark Hammarby. Aron lék fyrstu 58 mínúturnar í liði Hammarby sem er í 6. sæti deildarinnar með 23 stig. Eftir frábæra byrjun á tímabilinu hefur Norrköping fatast flugið og ekki unnið í fimm leikjum í röð. Liðið er í 4. sæti deildarinnar með 25 stig.
Sænski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Sjá meira