Sport

Völdu Júlían, Fjallið, Fúsa og Gunnar Nelson til að verja leikstjórnandann Ásdísi Hjálmsdóttur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásdís Hjálmsdóttir ætti ekki að eiga í miklum vandræðum með að kasta langt og þá er gott að vita af útherjanum Guðjóni Val Sigurðssyni.
Ásdís Hjálmsdóttir ætti ekki að eiga í miklum vandræðum með að kasta langt og þá er gott að vita af útherjanum Guðjóni Val Sigurðssyni. Getty/ Ian Walton

Hvernig væri íslenska landsliðið í amerískum fótbolta? Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Tíu Jardarnir fundu réttu leikmennina í hverja stöðu úr hópi íslensk afreksíþróttafólks og útkoman var áhugaverð.

Hlaðvarpsþátturinn Tíu Jardarnir fjallar um amerískan fótbolta og í nýjasta þættinum urðu þeir við ósk hlustanda um að henda í íslenska landsliðið í amerískum fótbolta.

Sú leið var farin að horfa á íslenskt afreksíþróttafólk í gegnum tíðina og finna réttu stöðuna fyrir hvert þeirra.

Ellefu leikmenn skipa sóknarlið í amerískum fótbolta, allt frá leikstjórnanda niður í mennina á bardagalínunni.

Það er óhætt að segja að þeir hafi verið fljótir að finna stöðu fyrir handboltamanninn Guðjón Val Sigurðsson sem er náttúrulega fæddur fyrstu útherji enda enginn í handboltaheiminum betri en hann í hraðaupphlaupum.

Í fyrstu hugsuðu þeir sér að nota handboltamennina Aron Pálmarsson eða Ólaf Stefánsson sem leikstjórnanda eða körfuboltamennina Jón Arnór Stefánsson og Martin Hermannsson en á endanum féllust þeir á að að spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir yrði leikstjórnandi liðsins enda vön að kasta langt.

KR-ingurinn Óskar Örn Hauksson er hlaupari liðsins og Kristófer Acox er innherji sem er staða sem margir fyrrum körfuboltamenn spila í NFL. Hinir útherjarnir auk Guðjóns Vals voru þau Margrét Lára Viðarsdóttir og Jóhann Berg Guðmundsson.

Það þarf líka að hugsa um að verja leikstjórnandann. Kúluvarparinn Hreinn Halldórsson var valinn sem senter en í sóknarlínunni voru síðan ekki minni menn en kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson, Íþróttamaður ársins og kraftlyftingamaninn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, handboltamaðurinn Sigfús Sigurðsson og bardagamaðurinn Gunnar Nelson.

Það er ljóst að Ásdís ætti að fá tíma til að senda boltann fram ef þessir menn væru að passa upp á hana.

Að lokum var komið að því að velja þjálfarana. Guðjón Þórðarson var aðalþjálfari liðsins, Guðmundur Guðmundsson er sóknarþjálfari og Alfreð Gíslason er varnarþjálfari.

Það má hlusta hér á nýjasta hlaðvarpsþáttinn en umfjöllunin um liðið hefst eftir 56 mínútur.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×