Tíska og hönnun

Heimsþekktir hönnuðir á verðlaunasýningu á HönnunarMars

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic verður sýnt á HönnunarMars í ár.
Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic verður sýnt á HönnunarMars í ár. Aðsend mynd

Félag íslenskra teiknara verður með tvær alþjóðlegar verðlaunasýningar á Hafnartorgi í tilefni af HönnunarMars 2020, sem fer fram dagana 24. til 28. júní. Um er að ræða farandsýningu Art Directors Club of Europe þar sem verðlaunuð verk víðsvegar að úr Evrópu verða til sýnis og Tolerance Project listamannsins Mirko Ilic. Listrænn stjórnandi sýninganna er Becky Forsythe.

Tolerance sýningin fagnar og heiðrar upphafið að allri merkri orðræðu: umburðarlyndi en Mirko Ilić hefur fengið yfir 140 hönnuði til að túlka viðfangsefnið, hver á sinn hátt og fer verkefnið sífellt stækkandi. Meðal hönnuða sem taka þátt eru Milton Glaser, KarlssonWilker, Ed Fella, Jessica Hische, Max Kisman og Sigurður Oddsson. Sýningin hefur verið sett upp í yfir 67 skipti í 27 löndum.

Ferðasýning Art Directors Club of Europe (ADC*E) sýnir verðlaunuð verk úr Evrópukeppni hönnuða en þátttökurétt í keppninni öðlast öll verðlaunuð verk frá hverju landi fyrir sig en Félag íslenskra teiknara (FÍT) er aðili að ADC*E og heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni.

Ferðasýning Art Directors Club of Europe

32 verkefni verða til sýnis en eitt af verðlaunuðum verkum er verkefnið Útmeða eftir Viktor Weisshappel sem var unnið með Tjarnargötunni fyrir Rauða kross Íslands og Geðhjálp. 

Útmeða - Rauði krossinnAðsend mynd

Viktor var valinn bjartasta von Evrópu (e. Young Creative European of the year) en mark­miðið verkefnisins var að fá ungt fólk til að tjá sig um erfiða líðan og leita sér hjálp­ar hjá fag­fólki ef á þarf að halda.

Kristín Eva Ólafsdóttir formaður FÍT og Viktor Weisshappel.Aðsend mynd

Opnunarhófið fer fram miðvikudaginn 24. júní frá 17 til 19 og verða sýningarnar opnar frá 11-19 til og með 28. júní. Nánari upplýsingar má finna á viðburðinum á Facebook.

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.

HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars


Tengdar fréttir

Fann upp plöntur sem þarf ekki að vökva

Listamaðurinn Halldór Eldjárn kynnir verk sín á HönnunarMars í næstu viku. Hann segir mikilvægt að halda líka utan um listamenn sem kjósa að fara ekki í hefðbundið listnám. 

„Ímyndaðu þér nýtt samgöngunet“

Næsta stopp er gagnvirk sýning þar sem nýju samgönguneti Borgarlínu, Strætó, hjólastíga og deililausna eru gerð skil á áhugaverðan hátt. Sýningin er hluti af HönnunarMars hátíðinni í ár og stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur til 24.júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×