Sport

Framkvæmdastjóri CrossFit segist ekki vera rasisti en viðurkennir mistök

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
CrossFit goðsögnin Rich Froning er einn af þeim sem hefur gagnrýnt forystu CrossFit samtakanna harðlega eftir ummælin. Hann var fjórum sinnum heimsmeistari í CrossFit á sínum tíma og hefur síðan unnið fjögur gull í liðakeppni á heimsleikunum í CrossFit. Á þessari mynd af Instagram síðu CrossFit leikanna þá er hann að fagna einum af þessum titlum.
CrossFit goðsögnin Rich Froning er einn af þeim sem hefur gagnrýnt forystu CrossFit samtakanna harðlega eftir ummælin. Hann var fjórum sinnum heimsmeistari í CrossFit á sínum tíma og hefur síðan unnið fjögur gull í liðakeppni á heimsleikunum í CrossFit. Á þessari mynd af Instagram síðu CrossFit leikanna þá er hann að fagna einum af þessum titlum. Mynd/Instagram

Greg Glassman, framkvæmdastjóri og stofnandi CrossFit, hefur nú sent frá sér afsökunarbeiðni vegna rasískra ummæla sem hann átti um George Floyd þegar hann svaraði færslu Institute for Health Metrics and Evaluation stofnunarinnar á Twitter.

Institute for Health Metrics and Evaluation var þar að lýsa því yfir að rasismi væri sannkallað heilbrigðisvandamál í kjölfar vakningarinnar í bandarísku þjóðfélagi eftir að blökkumaðurinn George Floyd lést í höndum lögreglu. Hann dó eftir að hvítur lögreglumaður lá með hné á hálsi hans í næstum því níu mínútur.

Svar Greg Glassman var hins vegar ömurlegt og óásættanlegt: „Það er FLOYD-19,“ skrifaði Greg Glassman með vísun í kórónuveiruna COVID-19.

Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Katrín Tanja Davíðsdóttir var miður sín vegna þessa og Anníe Mist Þórisdóttir tjáði sig einnig. Þá höfðu nokkrur úr hópi besta CrossFit fólks heims boðað það að þau myndu ekki keppa á heimsleikunum á meðan núverandi forysta CrossFit samtakanna væri í forsvari.

Toppfólk eins og Chandler Smith, Noah Ohlsen og Kristi Eramo O’Connell ætla ekki að keppa með óbreytta forystu. Það var því nauðsynlegt fyrir CrossFit samtökin að reyna að slökkva eldana en hvernig ný tilkynning Greg Glassman á eftir að fara í mannskapinn á eftir að koma í ljós.

Greg Glassman var í raun tilneyddur til að senda eitthvað frá sér og hann sendi frá sér tilkynningu í morgun.

„Ég, höfuðstöðvar CrossFit samtakanna og CrossFit samfélagið líðum ekki kynþáttafordóma. Ég gerði mistök með því að velja þessi orð mín í gær,“ skrifaði Greg Glassman.

„Ég er mjög leiður yfir þeim sársauka sem ég hef valdið fólki með þessu. Þetta voru hins vegar bara mistök hjá mér, ekki rasísk ummæli heldur mistök,“ skrifaði Greg Glassman.

Greg Glassman segist ekki hafa verið með kynþáttafordóma en nú er stóra spurningin hvort að þetta sé nóg. Hann hefur í það minnsta ollið CrossFit samtökunum miklu tjóni og á tíma þegar fleiri og fleiri stöðvar eru að hlaupast undan merkjum CrossFit samtakanna.

Framtíð CrossFit er því áfram í mikilli óvissu.

View this post on Instagram

I m not really sure how to start this. Loyalty is and always has been one of the values I hold strong to and have been anchored in throughout my life. My personal definition of loyalty takes into account and considers imperfection, making mistakes, asking forgiveness, and even showing grace to others who can never seem to get it right. However, my definition of loyalty does have firm boundaries. CrossFit has been something I ve felt loyalty towards over the past 10 years. While I ve struggled with some decisions made by CFHQ over the last couple of years and what I ve felt like have personally alienated some of the people who sacrificed and helped grow its brand. That is nothing compared to what has happened the last couple of days and has made it impossible to stay loyal to leadership who make callous statements that alienate and divide in a time when unity is needed. When I really sit and reflect it hasn t been CFHQ that I have been loyal to, but the community that supports inclusivity, fitness for all, and health. We will continue to be a part of that community but can no longer be loyal to someone or something that is so far from my own values. While I m considering what our next steps are we cannot and will not stand with these comments or beliefs.

A post shared by richfroning (@richfroning) on


Tengdar fréttir

Katrín Tanja: Skammast mín ákaflega mikið

Íslenska CrossFit drottningin Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ekki aðeins verið tilbúin að tjá sig um og styðja réttindabaráttu svartra heldur var hún einnig tilbúin að gagnrýna harðlega forystu CrossFit samtakanna fyrir þeirra rasísku viðbrögð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×