Úrhelli og flóðahætta þar sem gróðureldar geisa Kjartan Kjartansson skrifar 18. janúar 2020 08:01 Í Sydney í Nýja Suður-Wales fóru borgarbúar ekki varhluta af úrhellisrigningunni í gær. Vísir/EPA
Skýfall og þrumuveður hefur gert á nokkrum þeim svæðum þar sem gróðureldar hafa geisað á austurströnd Ástralíu og hefur úrhellið hjálpað í baráttunni við bálið. Óveðrið hefur hins vegar einnig valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Sums staðar er sögð hætta á flóðum. Mikið hefur rignt í Viktoríu, Nýja Suður-Wales og Queensland þar sem skógareldar hafa valdið usla undanfarna mánuði. Loka hefur þurft meiriháttar umferðaræðum í Queensland og rafmagni hefur slegið út í Nýja Suður-Wales vegna veðursins, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Í Nýja Suður-Wales er varað við flóðahættu en slökkviliðsmenn segjast nýta úrkomuna og svalara hitastig til að ná tökum á þeim 75 kjarreldum sem enn loga. Sum svæði ríkisins hafa þó enga úrkomu fengið, þar á meðal syðsti hluti ríkisins. Gróðureldarnir hafa valdið dauða að minnsta kosti 28 manns frá því að þeir kviknuðu fyrst í september. Þúsundir heimila hafa einnig orðið eldinum að bráð. Enn brenna stórir kjarreldar í sunna- og suðaustanverðri Ástralíu, þar á meðal á Kengúrueyju þar sem enga úrkomu hefur enn gert.
Ástralía Gróðureldar í Ástralíu Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira