Hjólreiðamenn hunsa landverði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 26. júlí 2013 11:00 Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðsvörður í Ásbyrgi, hvetur hjólreiðamenn til að nota stíga sem þeim eru ætlaðir en ekki stíga sem aðeins eru fyrir göngufólk. Mynd/Karin Charlotta Victoria Englund „
Við höfum fengið kvartanir frá göngufólki sem hefur lent í því að hjólamenn hafa komið eftir stígum sem er bannað að hjóla á,“ segir Hjörleifur Finnsson þjóðgarðsvörður í Ásbyrgi. „Þetta eru mjög þröngir stígar og margar blindhæðir. Svo koma þeir á fullri ferð og fólki bregður illa við það,“ segir Hjörleifur sem kveður hjólreiðamennina gjarnan bera því við að þeim hafi yfirsést bannskilti við upphaf stíganna. „Það er aldrei hægt að fullyrða hvort menn taka eftir skiltunum eða ekki. Það versta er að tvisvar höfum við lent í því að hjólamenn hafa virt að vettugi tilmæli landvarða um að hjóla ekki áfram. Við höfum verið hálf ráðalaus í bili yfir því hvernig við eigum að taka á þessu. En þetta gengur að minnsta kosti ekki til frambúðar,“ segir þjóðgarðsvörður. Aðspurður segir Hjörleifur um að ræða íslenska fjallahjólamenn á sérútbúnum hjólum. Engin óhöpp hafi orðið ennþá vegna þess. „Hins vegar er aðalástæðan fyrir því að göngustígarnir eru lokaðir fyrir hjólamönnum sú það er mikið af göngufólki á stígunum og oft ekki gott að sjá fyrir horn. Hér eru hjólaleiðir líka og við hvetjum alla hjólamenn til að leita sér upplýsinga um þá,“ segir þjóðgarðsvörður.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira