Leðrið sérhannað og saumað á Eika 3. maí 2007 10:30 Eiríkur verður í sérsaumuðum buxum og jakka á sviðinu í Helsinki. „
Hann verður í nýju sniði og sérsaumuðum buxum," segir Grétar Baldursson, hinn landskunni leðurhönnuður í Kós-leðurvörum, en hann hefur skilað af sér leðurfatnaðinum sem Eiríkur Hauksson á að klæðast á sviðinu í Helsinki. Væntanlega hefur Grétar gert ráð fyrir tveimur af hvorri sort enda ólíklegt að Eiríkur klæðist sama fatnaði bæði kvöldin. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu ríkir mikil spenna um það í hvaða fatnaði Eiríkur verður enda skiptir klæðaburður ekki síður miklu máli í keppni á borð við Eurovision þegar gengið er til atkvæða. Greinilegt er að taugarnar eru þandar til hins ýtrasta því Fréttablaðið hafði samband við Sigurð Frey Björnsson hjá BaseCamp, sem sagði að leðrið yrði saumað í London en hannað hjá Grétari. Leðurkóngurinn Grétar vísar þessu alfarið á bug. Grétar segir af og frá að leðrið sé saumað í London, hann sjái um það sjálfur. „Þetta verður enginn pabbajakki og ég sauma þetta sjálfur," segir Grétar og bætir því við að þegar hafi tíu einstaklingar óskað eftir því að fá svona jakka fyrir Eurovision-kvöldið mikla. „Það kemur ekki til greina, þessi jakki er bara fyrir Eirík," lýsir Grétar yfir. Stífar æfingar voru í allan gærdag í Loftkastalanum hjá hópnum þótt Eiríkur sjálfur væri víðsfjarri. Verið var að æfa sviðsetningu gítarstrákanna og þótti hún heppnast vel. Í dag verður síðan síðasta rennsli áður en hópurinn heldur út snemma á föstudagsmorgni.
Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið Fleiri fréttir Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Sjá meira