Erlent

Flóðavörnum enn ábótavant í New Orleans

Frá New Orleans
Frá New Orleans MYND/AP
Þrátt fyrir auknar varnir er mikil hætta á að stór hluti New Orleans færi á kaf ef fellibylur mundi geysa á svæðinu. Þetta kemur fram í rannsókn sem verkfræðingar bandaríska hersins hafa gert.

Um einum milljarði Bandaríkjadala hefur veri eytt í varnir í New Orleans nú þegar tvö ár eru liðin frá því að fellibylurinn Katrín fór þar um. Það dugir hins vegar ekki til því mörg svæði eru enn varnarlaus, jafnvel gagnvart mun vægari stormi en geisaði þegar Katrín gekk yfir. Um 1.700 manns létu þá lífið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×