Erlent

Búist við erfiðum fundi í Brussel

Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, tekur á móti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í Brussel í morgun.
Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, tekur á móti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í Brussel í morgun. MYND/AP

Leiðtogar Evrópsambandsríkjanna koma saman til fundar í Brussel í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um sáttmála um umbætur á samstarfinu. Þjóðverjar leggja til róttækar breytingar á samstarfinu en segja sáttmála sinn ekki nýja stjórnarskrá.

Búist er við erfiðum fundi þegar leiðtogar ríkjanna 27 hittast í Brussel og reyna að ná sameiginlegri niðurstöðu um breytingar á Evrópusamstarfinu. Í tillögum Þjóðverja, sem fara með forystu í ESB um þessar mundir, er gert ráð fyrir viðamikilli endurskipurlagningu á starfi sambandsins sem miðar að því að einfalda stjórnsýslu.

Þjóðverjar leggja mikla áherslu á að hinn nýi sáttmáli sé ekki ný stjórnarskrá fyrir sambandið sem kveði á um ofurríki í Evrópu. Þeir eru minnugir örlaga stjórnarskrár ESB fyrir tveimur árum, en þá höfnuðu bæði Frakkar og Hollendingar henni í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Talið er að helmingslíkur séu á að samkomulag náist um sáttmála á fundinum enda þarf að taka tillit til óska og krafna allra ríkjanna, en hagsmunir þeirra eru ólíkir.

Þannig eru Bretar andvígir því að lögfesta sáttmála ESB um grundvallarréttindi. Það geti fært Evrópudómstólnum vald til að breyta vinnulöggjöf í Bretlandi. Þá vilja Pólverjar aukið atkvæðavægi innan sambandsins og hafa báðar þjóðir hótað því að hafna sáttmálanum fái þær ekki sínu framgengt.

Búist er við að fundurinn standi jafnvel fram á laugardag vegna þess hve erfiðar viðræður eru í vændum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×