Erlent

Á fjórða þúsund hermanna hafa látist í Írak

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tólf bandarískir hermenn hafa látið lífið á tveimur dögum.
Tólf bandarískir hermenn hafa látið lífið á tveimur dögum.

Nú hafa ríflega 3500 bandarískir hermenn látist í Íraksstríðinu, þar af 68 í júnímánuði. Tólf bandarískir hermenn hafa látið lífið í árásum undanfarna tvo daga. Alvarlegasta árásin var í Norðaustur - Bagdad í dag þegar herbíll var sprengdur með þeim afleiðingum að fimm bandarískir hermenn létust, auk þriggja óbreyttra íraskra borgara og írasks túlks. Í sömu árás særðust einn bandarískur hermaður og tveir íraskir borgarar. Önnur árás var gerð á herbíl í Norður - Bagdad í dag með þeim afleiðingum að einn hermaður lést og þrír slösuðust. Ekkert lát virðist á árásunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×