Íbúðalánasjóði breytt í áhættusækinn útlánabanka Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. júlí 2013 19:45
Rannsókn á málefnum Íbúðalánasjóðs leiddi í ljós margvísleg mistök í rekstri sjóðsins, sum alvarleg sem kostað hafa þjóðina milljarða króna og í raun er ekki séð fyrir endann á þeim kostnaði. Ein veigamesta og afrifaríkasta ákvörðunin sem gerð var á þessu tímabili var niðurlagning húsabréfakerfisins árið 2004 og sú ákvörðun að hækka hámarkslánsfjárhæð og veðhlutfall lána sjóðsins, en það hækkaði úr 65% í 90%. Þetta var í raun pólitísk ákvörðun tekin af þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en Framsóknarflokkurinn hafði lofað 90% íbúðalánum í kosningum 2003 og gerði kröfu um efndir þessa kosningaloforðs í stjórnarmyndun. Rannsóknarnefndin var sett á grundvelli þingsályktunartillögu frá Alþingi og var í tvö ár að rannsaka málefni Íbúðalánasjóðs frá síðustu aldarmótum og fram í lok árs 2012. Húsbréfakerfið var lagt niður 1. júlí 2004 og íbúðabréfakerfið tekið upp. Skiptiútboðið sem ráðist var í í kjölfarið voru ein „verstu og afdrifaríkustu mistök sem Íbúðalánasjóður hefur gert, ef ekki þau allra verstu," að mati rannsóknarnefndarinnar. Skiptin á húsbréfum í íbúðabréf í hinu nýja kerfi var framkvæmt á forsendum sem stóðust ekki og vanrækt var að gaumgæfa.Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson voru oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn hafði lofað 90% íbúðalánum í þingkosningunum 2003. Flokkurinn gerði kröfu um efndir þessa loforðs í ríkisstjórnarsamstarfi og gerðar voru kerfisbreytingar á ÍLS í kjölfarið.Það sem er athyglisvert er að kerfisbreyting á Íbúðalánasjóði var gerð til að laða að erlent áhættufé til landsins til að lækka vexti. Þannig var húsbréfakerfið í raun lagt niður vegna eftirspurnar útlendinga. Að hluta til var þetta vegna vaxtastigs en við útskiptinguna buðust betri vaxtakjör með íbúðabréfakakerfinu. Því samhliða var hins vegar aukin áhættusækni.Ekki nauðsynlegt að breyta í íbúðakerfi „Það var líka markmið að einfalda kerfið því það voru bæði húsnæðisbréf og húsbréf sem voru í eldra kerfinu. Það var áhugi að koma með ein bréf og samræma skuldabréfaútgáfu ríkisins annars vegar, sem voru óverðtryggð bréf og verðtryggða útgáfu Íbúðalánasjóðs. Þannig að það var áhugi á því að breyta og það var tekin sú stefna að breyta. Hvort það hefði verið hægt að vera áfram með húsbréfakerfið, svarið við því er, það hefði alveg verið hægt," sagði Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur og einn nefndarmanna í rannsóknarnefndinni, þegar skýrslan var kynnt í dag. Fram kom á fundinum þegar skýrslan var kynnt að innlendir fjárfestar, semsagt Íslendingar, hefðu hvatt til þess að ráðist yrði í kerfisbreytinguna. Í hnotskurn: meiriháttar breyting var gerð á íslensku húsbréfakerfi árið 2004 vegna þrýstings frá fjárfestum, bæði innlendum og erlendum.Krafa um lægri vexti kallaði á kerfisbreytingarHvers vegna skipti það máli að ráðst í grundvallar breytingar á íbúðalánastofnun, af því það eru einhverjir útlendingar sem hafa áhuga á því að kaupa fjármálaafurðir? „Það er vegna þess að á Íslandi hafa alltaf verið háir vextir og það var ákveðin hugsjón fólgin í þessu sem fólst í því að lækka vexti á íbúðalánum á Íslandi sem hefði getað orðið. Vegna þess að ef þú býður út mjög stóra skuldabréfaflokka á alþjóðlegum markaði þá eru vextirnir lægri heldur en ef þú ert að bjóða þá á Íslandi eingöngu,“ segir Kirstín Þ. Flygenring, hagfræðingur og nefndarmaður í rannsóknarnefndinni. Vandinn við hátt vaxtastig á Íslandi er svo aftur nátengdur íslensku krónunni. Það voru fleiri alvarlegar misfellur í rekstri ÍLS. Á árunum 2004-2008 komu ítrekað fram athugasemdir frá bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og OECD, virtum alþjóðastofnunum, um alvarlega meinbaugi á rekstri sjóðsins. Alls var um að ræða 21 úttekt samtals. Meðal þess sem bent á var hversu óeðlilegt það væri að Íbúðalánasjóður væri að keppa við bankana um lánveitingar á markaði. Á þessar athugasemdir var aldrei hlustað. „Við eigum þessar athugasemdir skjalfestar og það var ekki brugðist við. Þið sjáið það bara á því sem var gert," segir Kristín.Og rökin fyrir því voru? „Við Íslendingar vildum bara hafa þetta svona. Íslendingar vildu hafa þetta eftir sínu höfði." Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson voru oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn hafði lofað 90% íbúðalánum í þingkosningunum 2003. Flokkurinn gerði kröfu um efndir þessa loforðs í ríkisstjórnarsamstarfi og gerðar voru kerfisbreytingar á ÍLS í kjölfarið.
Tengdar fréttir Illa ígrunduð útboð hjá ÍLS og óforsvaranlegur samningur Útboð á innheimtu og tengdri þjónustu fyrir Íbúðalánasjóð sem fram fór árið 1999 var illa ígrundað að því er fram kemur í niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð. 2. júlí 2013 16:02 Starfsmenn ÍLS skildu ekki áhættustýringu Starfsmönnum Íbúðalánasjóðs skorti þekkingu til að vinna með þær áhættustýringaraðferðir sem komið var á laggirnar fyrir sjóðinn, segir í niðurstöðukafla kolsvartrar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um sjóðinn. 2. júlí 2013 16:01 Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samábyrg fyrir breytingum Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var samábyrg fyrir breytingum innan Íbúðalánasjóðs árið 2004 að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð. 2. júlí 2013 15:11 Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira
Illa ígrunduð útboð hjá ÍLS og óforsvaranlegur samningur Útboð á innheimtu og tengdri þjónustu fyrir Íbúðalánasjóð sem fram fór árið 1999 var illa ígrundað að því er fram kemur í niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð. 2. júlí 2013 16:02
Starfsmenn ÍLS skildu ekki áhættustýringu Starfsmönnum Íbúðalánasjóðs skorti þekkingu til að vinna með þær áhættustýringaraðferðir sem komið var á laggirnar fyrir sjóðinn, segir í niðurstöðukafla kolsvartrar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um sjóðinn. 2. júlí 2013 16:01
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samábyrg fyrir breytingum Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var samábyrg fyrir breytingum innan Íbúðalánasjóðs árið 2004 að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð. 2. júlí 2013 15:11