Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samábyrg fyrir breytingum 2. júlí 2013 15:11 Íbúðalánasjóður.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var samábyrg fyrir breytingum innan Íbúðalánasjóðs árið 2004 að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð. Þar segir að þó hafi verið um þær pólitískur ágreiningur milli flokkanna og jafnvel innan þeirra. „Það veikti þá umgjörð og festu sem hefði þurft að vera til staðar við innleiðinguna. Þessi pólitíski ágreiningur endurspeglaðist í mismunandi afstöðu ráðuneyta og einnig annarra stofnana og veikti eftirlitið með Íbúðalánasjóði,“ að því er fram kemur í skýrslunni en þar segir einnig að ekki hafi verið hægt að túlka breytingar á sjóðnum öðruvísi en sem markaðssókn. Í skýrslunni segir að ríkisábyrgð hafi verið notuð til þess að laða að meðal annars erlent áhættufé til þess að lækka vexti. Uppgreiðsluáhætta Íbúðalánasjóðs var stóraukin og var þar farið gegn ráðleggingum sérfræðinga. Greiðslubyrði útlána var lækkuð og lánsupphæðir og lánshlutföll hækkuð. Íbúðalánasjóði var gert mun erfiðara en áður að bregðast við samkeppni á markaðnum einmitt þegar búast mátti við að hún myndi aukast enda höfðu ýmsir bent sjóðnum á að viðskiptabankarnir ætluðu sér aukna hlutdeild á fasteignalánamarkaðnum. Þá segir einnig að við innleiðingu kerfisbreytinga á Íbúðalánasjóði árið 2004 sem fólust í upptöku íbúðabréfakerfisins og 90% veðhlutfalls, myndaðist nokkur fjarlægð á milli nánustu samstarfsmanna félagsmálaráðherrans, (sem var Árni Magnússon, Framsóknarflokknum), sem voru m.a. starfsmenn ÍLS, og starfsmanna ráðuneytisins. Það hafði óheppilegar afleiðingar að því er fram kemur í skýrslunni.
Tengdar fréttir Skuldabréfaskiptin ein verstu mistökin Rannsóknarnefnd Alþingis um starsemi Íbúðalánasjóðs segir í kolsvartri skýrslu um sjóðinn að ein verstu mistökin sem voru gerð hjá sjóðnum hafi verið þegar íbúðabréfakerfið var tekið upp árið0 2004 og húsbréfakerfið lagt niður. 2. júlí 2013 14:55 Skýrsla um starfsemi og rekstur Íbúðalánasjóðs birt í dag Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um starfsemi Íbúðalánasjóðs verður afhent í dag klukkan 13.00 í Alþingishúsinu og birt á vef Alþingis klukkan 14.00. 2. júlí 2013 09:19 Mistök Íbúðalánasjóðs kostað þjóðina milljarða Í ágripi um helstu niðurstöður rannsóknarnefndar um Íbúðalánasjóð segir að rannsókn þeirra hafi leitt í ljós margvísleg mistök, sum mjög alvarleg, sem hafa kostað þjóðina milljarða króna. 2. júlí 2013 14:17 Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Sjá meira
Skuldabréfaskiptin ein verstu mistökin Rannsóknarnefnd Alþingis um starsemi Íbúðalánasjóðs segir í kolsvartri skýrslu um sjóðinn að ein verstu mistökin sem voru gerð hjá sjóðnum hafi verið þegar íbúðabréfakerfið var tekið upp árið0 2004 og húsbréfakerfið lagt niður. 2. júlí 2013 14:55
Skýrsla um starfsemi og rekstur Íbúðalánasjóðs birt í dag Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um starfsemi Íbúðalánasjóðs verður afhent í dag klukkan 13.00 í Alþingishúsinu og birt á vef Alþingis klukkan 14.00. 2. júlí 2013 09:19
Mistök Íbúðalánasjóðs kostað þjóðina milljarða Í ágripi um helstu niðurstöður rannsóknarnefndar um Íbúðalánasjóð segir að rannsókn þeirra hafi leitt í ljós margvísleg mistök, sum mjög alvarleg, sem hafa kostað þjóðina milljarða króna. 2. júlí 2013 14:17