„Ég hef nú alltaf dýrkað þennan söngleik og hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Guðmundur Felixson sem nú stjórnar sinni fjórðu menntaskólauppfærslu en hann útskrifaðist sem sviðslistahöfundur árið 2015. „Ég sá söngleikinn í Loftkastalanum árið 1999, þá aðeins níu ára gamall, og hef haldið upp á hann síðan. Ég held að stjórn Herranætur hafi eitthvað haft veður af þessum áhuga mínum þegar þau fóru þess á leit við mig að taka að mér leikstjórnina.“

„Pabbi var að leika í sýningunni, við bjuggum rétt hjá Loftkastalanum og við einfaldlega röltum yfir á sýningar,“ útskýrir Guðmundur.

Guðmundur segir Rent stærstu sýningu sem hann hafi tekið að sér. „Það er sungið nánast alla sýninguna svo þátttakendur þurfa að vera brjálæðislega miklir söngvarar. Það er mikill áhugi á Herranótt í MR eins og iðulega svo við völdum fólk í sýninguna í gegnum spunanámskeið sem ég setti upp. Svo voru ítarlegar söngprufur, enda skiptir söngurinn mestu í þessu verkefni. Danshöfundurinn var svo með dansprufur og við tókum inn sérstakan danshóp.“
Guðmundur segir 25 manns fara með hlutverk í sýningunni og að annar eins fjöldi komi að henni á bak við tjöldin. „Það er frábært að vinna með þessum krökkum sem gera þetta af áhuganum einum saman og leggja mikið á sig til að útkoman sé sem best.“

Umræðan á enn erindi í dag
En hvaða erindi á verk um HIV-smitaða listamenn í New York við íslenska menntskælinga árið 2019?„Ég hef spurt mig að þessu lengi og ég var að vissu leyti smeykur við að setja verkið upp. Það er vissulega barn síns tíma, tíma þegar alnæmisfaraldurinn stendur sem hæst en flest þeirra sem nú koma að sýningunni voru ekki einu sinni fædd þá. En í fyrsta lagi er þetta ástarsaga og í öðru lagi er umfjöllunarefnið valið um að fylgja hugsjónum þínum eða taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu,“ útskýrir Guðmundur en hvort tveggja er auðvitað tímalaust efni. „Umræðan um HIV og alnæmi á svo enn erindi í dag en tugir nýrra smita koma upp hér á landi ár hvert. Svo er mikilvægt að gera ekki lítið úr sögunni og því sem meðlimir í LBGTQ-samfélaginu þurftu að þola á þessum tíma. Sú upprifjun á fullt erindi við menntaskólanemendur dagsins í dag.“
Rent verður frumsýnt 15. mars í Gamla bíói og hefst miðasala í dag á midi.is en fyrirætlaðar eru átta sýningar alls.
