Ekki enn búnir að vinna deildarleik án Arons Einars Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2019 13:00 Aron Einar Gunnarsson fagnar öðru marka sinna. Getty/Simon Holmes
Ef við Íslendingar höldum að landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sé mikilvægur fyrir íslenska karlandsliðið í knattspyrnu hvað er þá hægt að segja um mikilvægi hans fyrir Al Arabi liðið í Katar. Aron Einar Gunnarsson er enn að vinna sig til baka eftir ökklameiðslin sem hann varð fyrir í byrjun október. Aron Einar missti af fjórum síðustu leikjum Íslands í undankeppni EM 2020 vegna þeirra og hefur ekki spilað með Al Arabi frá 4. október síðastliðnum. Það er mjög athyglisvert að skoða nánar hvernig liði Al Arabi hefur gengið í deildinni í Katar síðan að liðið missti Aron Einar Gunnarsson í meiðsli. Al Arabi vann 3-1 sigur á Al Khor í síðasta deildarleik Arons Einars og sá sigur skilaði liðinu upp í annað sæti deildarinnar. Al Arabi var þá komið með þrettán stig í hús af fimmtán mögulegum eftir þrjá sigurleiki í röð og fjóra sigurleiki í fyrstu fimm umferðunum. Aron Einar hafði sjálfur skorað tvö mörk í þessum fimm leikjum. Eftir að Aron datt út hefur gengi Al Arabi hreinlega hrunið. Liðið hefur enn ekki unnið leik í deildinni síðan þá og aðeins fengið samtals tvö stig af fimmtán mögulegum. Liðið sem skoraði fjórtán mörk í fyrstu fimm leikjunum hefur aðeins skorað fimm mörk í leikjunum án Arons. Hér munar næstum því tveimur heilum mörkum í leik. Al Arabi er nú í fimmta sæti deildarinnar en nú eru aðeins þrjú stig niður í níunda sætið. Það eru aftur á móti tíu stig í annað sætið þar sem Al Arabi sat fyrir tveimur mánuðum síðan. Hér fyrir neðan má sjá þennan ótrúlega mun á gengi Al Arabi með og án íslenska landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar.Al Arabi með Aron Einar í Stjörnudeild Katar 2019 13 stig af 15 mögulegum (87%) +9 í markatölu (14-5)Al Arabi án Arons Einars í Stjörnudeild Katar 2019 2 stig af 15 mögulegum (13%) -3 í markatölu (5-8)
Fótbolti Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Sjá meira