Svakalegur riðill bíður Íslands á EM Íþróttadeild skrifar 30. nóvember 2019 18:00 Íslenska landsliðinu í knattspyrnu bíður svakalegur riðill komist liðið í lokakeppni EM. Dregið var í riðla í Bucharest í Rúmeníu í dag, en fyrir dráttinn var ljóst að sigurvegari A-umspilsins, sem Ísland er í, yrði í F-riðli með Þýskalandi. Það átti eftir að fylla hin tvö sætin í riðlinum og þangað fór líklega erfiðasti andstæðingurinn úr hvorum potti, heimsmeistarar Frakklands og Evrópumeistarar Portúgal. Ísland mun mæta Portúgal í fyrsta leik riðilsins fari liðið á EM, en Portúgal var einmitt fyrsti andstæðingur Íslands á EM 2016.Play-off winner A France Portugal Germany #EURO2020 — UEFA EURO 2020 (@EURO2020) November 30, 2019 F-riðillinn er án nokkurs vafa dauðariðill mótsins en alla riðlana má sjá hér að neðan í beinu textalýsingunni frá drættinum. EM 2020 hefst með opnunarleik 12. júní í Róm. Fyrsti leikur Íslands, komist þeir á EM, verður 16. júní í Búdapest. Riðlakeppninni lýkur svo 24. júní en úrslitaleikurinn fer fram á Wembley þann 12. júlí. Fyrst þarf Ísland þó að fara í gegnum umspilið en undanúrslit umspilsins fara fram 26. mars.
Íslenska landsliðinu í knattspyrnu bíður svakalegur riðill komist liðið í lokakeppni EM. Dregið var í riðla í Bucharest í Rúmeníu í dag, en fyrir dráttinn var ljóst að sigurvegari A-umspilsins, sem Ísland er í, yrði í F-riðli með Þýskalandi. Það átti eftir að fylla hin tvö sætin í riðlinum og þangað fór líklega erfiðasti andstæðingurinn úr hvorum potti, heimsmeistarar Frakklands og Evrópumeistarar Portúgal. Ísland mun mæta Portúgal í fyrsta leik riðilsins fari liðið á EM, en Portúgal var einmitt fyrsti andstæðingur Íslands á EM 2016.Play-off winner A France Portugal Germany #EURO2020 — UEFA EURO 2020 (@EURO2020) November 30, 2019 F-riðillinn er án nokkurs vafa dauðariðill mótsins en alla riðlana má sjá hér að neðan í beinu textalýsingunni frá drættinum. EM 2020 hefst með opnunarleik 12. júní í Róm. Fyrsti leikur Íslands, komist þeir á EM, verður 16. júní í Búdapest. Riðlakeppninni lýkur svo 24. júní en úrslitaleikurinn fer fram á Wembley þann 12. júlí. Fyrst þarf Ísland þó að fara í gegnum umspilið en undanúrslit umspilsins fara fram 26. mars.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira