Handbolti

Öflugur sigur í Meistaradeildinni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafur Guðmundsson ber fyrirliðaband Kristianstad
Ólafur Guðmundsson ber fyrirliðaband Kristianstad vísir/getty
Kristianstad vann sterkan sigur á pólska liðinu Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad en Valter Chrintz átti stórleik og setti tíu stykku. Teitur Örn Einarsson skoraði sex.

Kristianstad byrjaði leikinn vel og tók forystuna snemma. Heimamenn létu hana aldrei af hendi, leiddu 15-9 í hálfleik og lauk leiknum með 24-19 sigri.

Kristianstad er með níu stig í 4. sæti D-riðils, jafn mörg stig og GOG sem þó á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×