Handbolti

FH skoraði 42 mörk gegn Víkingi og tryggði sér sæti í 8-liða úr­slitum bikarsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ragnheiður lék á alls oddi í kvöld.
Ragnheiður lék á alls oddi í kvöld. mynd/brynja traustadóttir/fhhandbolti
FH gerði sér lítið fyrir og skoraði 42 mörk gegn Víkingi er liðin mættust í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikars kvenna í kvöld.

Það var strax ljóst í hvað stefndi en Fimleikafélagið var tíu mörkum yfir í hálfleik, 20-10, og sigurinn nánast í höfn.

Hafnarfjarðarliðið slakaði ekkert á klónni í síðari hálfleik og endaði á því að skora 42 mörk gegn einungis átján mörkum Víkinga. Lokatölur 42-18.

Ragnheiður Tómasdóttir skoraði ellefu mörk fyrir FH og hin unga og efnilega Sylvía Björt Blöndal bætti við níu mörkum.

Katrín Hallgrímsdóttir gerði fjögur fyrir Víking og Ester Inga Ögmundsdóttir þrjú.

Liðin í 8-liða úrslitunum:

Valur

Fram

KA/Þór

HK

Fjölnir

ÍR

FH

Haukar/ÍBV (mætast 13. nóvember)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×