Rússar hrifnir af okkar ríkulegu menningu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. október 2019 10:00 Þær Alexandra og Gerður alsælar í hinni stórkostlegu Pétursborg.
Tónleikarnir í Pétursborg voru yndislegir, þar var fullt hús af áhugasömum áheyrendum sem voru mjög þakklátir fyrir að fá að kynnast íslenskri, lifandi tónlist,“ segir Gerður Bolladóttir söngkona sem er nýlega komin úr mikilli Bjarmalandsför til Rússlands. Þangað fór hún ásamt stallsystur sinni Alexöndru Chernyshovu söngkonu og Kjartani Valdimarssyni píanóleikara. Gerður segir þekkt rússneskt tónlistarfólk hafa verið meðal áheyrenda. „Það komu margir til okkar eftir tónleikana og lýstu yfir hrifningu sinni á ríkulegri menningu Íslands, tónlistinni sem við fluttum og ljóðum sem voru þýdd yfir á rússnesku og varpað á tjald meðan flutningi stóð. Við bara heilluðum þá upp úr skónum!“ Báðar eru þær Gerður og Alexandra sópransöngkonur og líka tónskáld og meðal þess sem þær sungu fyrir Rússana voru eigin lög. „Við frumfluttum þrjú lög við ljóð sem Sigurður Ingólfsson orti handa mér. Svo sungum við rómantísk tónverk eftir mig við ljóð íslenskra skálda, meðal annars Kristján Hreinsson og líka langömmu mína og frændur. Einnig sungum við aríur, dúett og kór úr óperunni Skáldið og Biskupsdóttirin eftir Alexöndru við líbrettó Guðrúnar Ásmundsdóttur. Píanóleikur var í höndum Kjartans Valdemarssonar, eins af okkar bestu píanóleikurum, og hlutverk Hallgríms Péturssonar í óperunni söng bassa-barítónsöngvari frá Moskvu. Hann heitir Sergei Telenkov og hann söng á íslensku.“ Gerður segir Alexöndru hafa átt hugmyndina að þessum tónleikum eins og fleiri viðburðum af líkum toga. „Hún Alexandra er rússneskrar ættar en hefur búið hér á landi í mörg ár og verið virk í tónlistarsenunni, eins og flestir vita. Henni datt í hug fyrir nokkrum árum að gaman væri að mynda tónlistarmenningarbrú milli Rússlands og Íslands. Það verkefni nefnist Russian Souvenir og hefur nú staðið í fjögur ár. Á þeim tíma hafa verið settir upp fimmtán viðburðir bæði í Rússlandi og hér og okkar ferð tilheyrði því verkefni.“ Rússneskir fjölmiðlar voru áhugasamir um tónleikana. Gerður segir þær Alexöndru og Kjartan hafa farið í viðtöl í sjónvarpi og líka í elstu og rótgrónustu útvarpsstöð Pétursborgar og eiginmaður Alexöndru, Jón R. Hilmarsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, hafi sýnt ljósmyndir sem hrifu fólk. „Ég held ég geti fullyrt að áheyrendur bjuggust ekki við svona flottum tónleikum og líka ljósmyndasýningu,“ segir Gerður og bætir við að Jón opni aðra sýningu í Pétursborg á sunnudaginn, 13. október, á opnunarhátíð Nordic Weeks.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Lífið Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Lífið Alexandra greifynja breytir nafninu Lífið Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Lífið Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Lífið Svaraði engu um Affleck Lífið Birnir og Bríet gefa saman út plötu Lífið Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Lífið Rakel María fann draumaprinsinn Lífið Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira