Salah bjargvættur Liverpool í sjö marka leik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mohamed Salah
Mohamed Salah vísir/getty
Mohamed Salah bjargaði Liverpool fyrir horn gegn RB Salzburg í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Eftir tap fyrir Napólí í fyrsta leik byrjuðu Liverpoolmenn af krafti á heimavelli í kvöld og voru komnir 2-0 yfir áður en hálftími var liðinn. Sadio Mane og Andy Robertsson skoruðu mörkin.

Salah kom Liverpool í 3-0 á 36. mínútu og stefndi allt í þægilegt kvöld fyrir heimamenn.

Gestirnir frá Austurríki náðu hins vegar að klóra í bakkann með marki frá Hwang Hee-Chan aðeins þremur mínútum seinna.

Á fjögurra mínútna kafla í seinni hálfleik náðu gestirnir að jafna metin.

Egyptinn kom hins vegar Liverpool til bjargar og skoraði sigurmarkið á 69. mínútu.

Lokatölur urðu 4-3 og Liverpool náði í sín fyrstu stig í Meistaradeildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira