Lífið

Sigrún Ósk: „Ég hef ekki einu sinni hugmyndaflug í svona“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það var táraflóð í hitanum í New York ríki þegar Guðmundur Kort og Sigrún kona hans fundu leiði Dino Lorenzini, föður Guðmundar.
Það var táraflóð í hitanum í New York ríki þegar Guðmundur Kort og Sigrún kona hans fundu leiði Dino Lorenzini, föður Guðmundar. Vísir
Augnablikið þegar Guðmundur Kort og Sigrún eiginkona hans fundu leiði Dino, föður Guðmundar, í þriðju þáttaröð Leitarinnar að upprunanum vakti mikla athygli.  Sigrún Ósk og Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri á Vísi, ræddu senuna og fleiri í hlaðvarpinu Á bak við tjöldin í vikunni.

Guðmundur var komin til New York ríkis í Bandaríkjunum og kominn með upplýsingar um hvar faðir hans væri grafinn. Þegar fjölskyldan var við það að gefast upp, eftir að hafa gengið kirkjugarðinn endilangan, var eins og Sigrún kona Guðmundar fengi skilaboð að handan.

Einhverjir hefðu mögulega talið að um einhvers konar ýkjur væru að ræða af hálfu Sigrúnar Óskar. Hún þvertekur fyrir það og hlær,.

„Ég hef ekki einu sinni hugmyndaflug í svona Tumi!“


Guðmundur og Sigrún í hitanum í Bandaríkjunum.Vísir

Dino minn, vísaðu okkur nú á leiðið

„Þetta var absúrd. Ég var ekki með skeiðklukku á mér en við höfum örugglega verið að labba þarna um í einn og hálfan tíma. Það var brjálæðislega heitt, enginn skuggi og maður að leka niður í júní eða júlíhita þarna í Bandaríkjunum. Vorum farin að ræða það að reyna þetta seinna,“ segir Sigrún Ósk.

„Þá hrekkur upp úr Sigrúnu. Dino minn, vísaðu okkur nú á leiðið. Og ég lýg því ekki. Hún snýr sér við og þar er það, bara beint. Við bara, hvað er í gangi?“

Þetta sé ekki í fyrsta skipti sem svo virðist sem örlögin grípi í taumana, að sögn Sigrúnar Óskar.

„Æi ég veit það ekki. Ég trúi ekki á margt en stundum fer maður að hugsa. Eitthvað er einhvers staðar skrifað í einhver skýr. Örlögin eru að stjórna einhverju. “

Sigrún Ósk hefur hlotið blaðamanna- og Edduverðlaun fyrir þættina.Vísir

Dáist að Guðmundi

Augnablikið þegar Guðmundur sér leiði föður síns er þungið tilfinningum. 

„Margir eru búnir að ræða hana við mig eftir þáttinn. Fólki finnst svo ótrúlegt að maður geti komið til Bandaríkjanna og staðið yfir legsteini hjá manni sem var honum ókunnugur og það hafi svona mikil áhrif á hann. Ég held að það sé bara öll þessi saga og þessi langi tími. Guðmundur sagði mér sjálfur að honum fannst hann einhvern veginn kominn til hans, eins og hægt var miðað við ástæður,“ segir Sigrún Ósk.

„Ég hef alltaf dáðst að Guðmundi fyrir að hafa ekki svekkt sig á því að hafa ekki hitt hann á meðan hann var á lífi. Stundum á maður það til að velta sér upp úr svoleiðis. En ég veit að hann meinar það. Honum hefur alveg tekist að sleppa því. Hann er maður núsins og hefur tekið þann pólinn í hæðina að það sé frábært að hafa fengið þessi svör og hitta systkinin.“

Hlusta má á Á bak við tjöldin hér að neðan.

Þriðji þáttur Leitarinnar að upprunanum verður sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:45. Þar verður saga Þórunnar Kristínar Sigurðardóttur sögð en hún er 38 ára kona af kólumbískum uppruna. Þaðan var hún ættleidd svo til nýfædd og aldrei heimsótt heimahagana. Fyrir nokkrum árum kviknaði þráin að finna uppruna sinn og fara Sigrún Ósk og föruneyti með Þórunni Kristínu í það verkefni. 




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×