Kolbeinn búinn að skora í þremur síðustu leikjum með Jón Daða sér við hlið Óskar Ófeigur Jónsson í Elbasan skrifar 10. september 2019 17:00 Jón Daði og Kolbeinn fagna saman á EM. vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson kann greinilega mjög vel við sig með Jón Daða Böðvarsson með sér í framlínu íslenska landsliðsins. Þeir fengu að byrja saman síðasta leik á móti Moldóvu á Laugardalsvellinum á laugardaginn og skoruðu báðir. Jón Daði átti líka glæsilega stoðsendingu á Kolbein sem skilaði mikilvægu fyrsta marki leiksins. Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði Böðvarsson höfðu síðast verið saman í byrjunarliði íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016 eða fyrir rúmum þremur árum síðan. Það er vissulega hægt að binda miklar væntingar til samvinnu þessara tveggja öflugu en ólíku framherja. Þeir vega hvorn annan upp og vinna vel saman. Kolbeinn Sigþórsson er þannig búinn að skora í þremur síðustu leikjum sem hann hefur byrjað með Jón Daða Böðvarsson sér við hlið. Jón Daði hefur átt stoðsendinguna á hann í tveimur af þessum þremur mörkum. Leikirnir eru sigurleikurinn á móti Englandi í sextán liða úrslitum EM 2016, tapleikurinn á móti Frakklandi í átta liða úrslitum EM 2016 og svo leikurinn á móti Moldóvu um síðustu helgi. Annað hvort Kolbeinn eða Jón Daði hafa skorað í síðustu fjórum leikjum sem þeir hafa byrjað hlið við hlið í íslenska landsliðinu. Jón Daði skoraði á móti Austurríki í síðasta leik íslenska liðsins í riðlakeppni EM 2016. Nú er bara að vona að þeir haldi áfram þessari frábæru samvinnu sinni í mikilvægum leik á móti Albaníu í Elbasan í kvöld.Síðustu fjórir leikir Kolbeins og Jóns Daða saman í byrjunarliði íslenska landsliðsins:7. september 2019: 3-0 sigur á Moldóvu Jón Daði með mark og stoðsendingu - Kolbeinn með mark3. júlí 2016: 2-5 tap fyrir Frakklandi Kolbeinn með mark27. júní 2016: 2-1 sigur á Englandi Kolbeinn með mark - Jón Daði með stoðsendingu22. júní 2016: 2-1 sigur á Austurríki Jón Daði með markSamtals í þessum 4 leikjum Kolbeinn Sigþórsson: 3 mörk Jón Daði Böðvarsson: 2 mörk og 2 stoðsendingar
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira