Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Öll ábyrgðin nú á herðum Snorra Steins

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Valsmenn enduðu í 3. sæti Olís-deildarinnar á síðasta tímabili.
Valsmenn enduðu í 3. sæti Olís-deildarinnar á síðasta tímabili. vísir/bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins þrjá daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að ellefta liðinu í spá okkar.

Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:

1. sæti - (6. september)

2. sæti - Valur

3. sæti - ÍBV

4. sæti - Haukar

5. sæti - Selfoss

6. sæti - Afturelding

7. sæti - Stjarnan

8. sæti - ÍR

9. sæti - KA

10. sæti - HK

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Orri Freyr Gíslason er hættur. Hann hefur verið fyrirliði Vals undanfarin ár.vísir/bára
Íþróttadeild spáir því að Valur endi í öðru sæti deildarinnar, einu sæti ofar en á síðasta tímabili.

Eftir að hafa unnið tvöfalt tímabilið 2016-17 hefur enginn titill komið í hús hjá Val. Á síðasta tímabili enduðu Valsmenn í 3. sæti og voru aðeins einu stigi á eftir efstu tveimur liðunum.

Valur féll svo úr leik fyrir Íslandsmeisturum Selfoss, 3-0, í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Agnar Smári Jónsson og Magnús Óli Magnússon voru fjarri góðu gamni í úrslitakeppninni vegna meiðsla. Valsmenn komust í bikarúrslit þar sem þeir töpuðu fyrir FH-ingum.

Eftir að hafa stýrt Val ásamt Guðlaugi Arnarssyni í tvö ár er Snorri Steinn Guðjónsson núna einn við stýrið.

Valsmenn fóru sér hægt á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Þeir skiptu á markvörðum og fengu Finn Inga Stefánsson aftur. Fyrirliðinn Orri Freyr Gíslason er hins vegar hættur.



Komnir/Farnir:

Komnir:

Hreiðar Levý Guðmundsson frá Gróttu

Finnur Ingi Stefánsson frá Aftureldingu

Farnir:

Einar Baldvin Baldvinsson í Selfoss

Orri Freyr Gíslason, hættur

Daníel Freyr Andrésson var besti markvörður Olís-deildarinnar í fyrra.vísir/bára
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Vals 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 4. sæti (28,1)

Skotnýting - 6. sæti (58,2%)

Vítanýting - 3. sæti (76,3%)

Hraðaupphlaupsmörk - 1. sæti (79)

Stoðsendingar í leik - 9. sæti (9,1)

Tapaðir boltar í leik - 5. sæti (8,1)

Vörn og markvarsla Vals 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 1. sæti (24,0)

Hlutfallsmarkvarsla - 1. sæti (37,2%)

Varin víti - 8. sæti (12)

Stolnir boltar - 9. sæti (70)

Varin skot í vörn - 4. sæti (51)

Lögleg stopp í leik - 5. sæti (19,9)

Róbert Aron Hostert er að hefja sitt annað tímabil með Val.vísir/bára
Líklegt byrjunarlið Vals í vetur

Markvörður - Daníel Freyr Andrésson - 30 ára

Vinstra horn - Vignir Stefánsson - 29 ára

Vinstri skytta - Róbert Aron Hostert - 28 ára

Miðja - Anton Rúnarsson - 31 árs

Hægri skytta - Agnar Smári Jónsson - 26 ára

Hægra horn - Finnur Ingi Stefánsson - 32 ára

Lína - Ýmir Örn Gíslason - 22 ára

Varnarmaður - Alexander Örn Júlíusson - 25 ára

 

Tryggvi Garðar Jónsson er engin smásmíði.mynd/valur
Fylgist með

Tryggvi Garðar Jónsson (f. 2003) er mikið efni og tröll að burðum þrátt fyrir ungan aldur.

Skyttan öfluga fékk tækifæri á undirbúningstímabilinu og gæti fengið að spila í byrjun móts meðan Magnús Óli og Agnar Smári eru enn frá vegna meiðsla.

Snorri Steinn Guðjónsson verður einn við stýrið á Valsskútunni í vetur.vísir/bára
Þjálfarinn

Snorri Steinn Guðjónsson kom heim eftir 14 ár í atvinnumennsku sumarið 2017 og tók við sínu uppeldisfélagi, Val. Fyrstu tvö tímabilin stýrði hann Valsmönnum ásamt Guðlaugi Arnarssyni en núna er hann sá eini sem er titlaður aðalþjálfari. Honum til halds og trausts verður hinn þrautreyndi Óskar Bjarni Óskarsson. 

Snorri Steinn hóf ferilinn með Val og lék með liðinu til 2003 þegar hann hélt erlendis í atvinnumennsku. Hann lék í Þýskalandi, Danmörku og Frakklandi. Snorri Steinn lék lengi með landsliðinu og fór á fjölda stórmóta með því. Hann var í lykilhlutverki þegar Ísland vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 2008 og bronsverðlauna á EM tveimur árum síðar.





Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: Valur
Hvað segir sérfræðingurinn?„Það eru þjálfarabreytingar hjá Val eins og hjá nokkrum liðum. Snorri Steinn ætlar núna að stýra skútunni mestmegnis einn og hann er búinn að fá sína eldskírn í þessum bolta,“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Valsliðið.

„Þeir voru rólegri á markaðnum en þeir hafa verið undanfarin ár enda engin ástæða til að gera stóra hluti þar. Þeir eru með frábært lið og fá líka inn Finn og Hreiðar. Þeir tveir koma með mikil gæði og mikla reynslu inn í liðið sem er akkúrat það sem þarf,“ sagði Jóhann Gunnar.

„Valsmenn eru búnir að vera óheppnir með meiðsli og síðasta tímabil fór illa með þá. Vonandi koma Magnús Óli og Agnar til baka sem fyrst og geta þá tekið fullan þátt því þá verða þeir ógnasterkir,“ sagði Jóhann Gunnar.

„Orri segist vera hættur en það kæmi mér ekkert á óvart ef að hann væri komin aftur inn á gólfið ef í harðbakkann slær. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Valsmenn koma til leiks og við gerum ráð fyrir að þeir verði að berjast um alla titla eins og mörg önnur lið,“ sagði Jóhann Gunnar.

Valsmenn urðu tvöfaldir meistarar fyrir tveimur árum.vísir/anton
Hversu langt síðan að Valur ...

... varð Íslandsmeistari: 2 ár (2017)

... varð deildarmeistari: 4 ár (2015)

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2019)

... varð bikarmeistari: 2 ár (2017)

... komst í bikarúrslit: 0 ár (2019)

... komst ekki í úrslitakeppni: 6 ár (2013)

... komst í undanúrslit: 0 ár (2019)

... komst í lokaúrslit: 2 ár (2017)

... féll úr deildinni:  57 ár (1962)

... kom upp í deildina:  54 ár (1965)

Gengi Vals í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  3. sæti í deildinni

2017-18  4. sæti í deildinni

2016-17  7. sæti í deildinni

2015-16  2. sæti í deildinni

2014-15  Deildarmeistari

2013-14  3. sæti í deildinni

2012-13  7. sæti í deildinni

2011-12  6. sæti í deildinni

Gengi Vals í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  Undanúrslit

2017-18  Átta liða úrslit

2016-17  Íslandsmeistari

2015-16  Undanúrslit

2014-15  Undanúrslit

2013-14  Undanúrslit

2012-13  Ekki í úrslitakeppni

2011-12  Ekki í úrslitakeppni

Valsmenn ætla sér stóra hluti í vetur.vísir/bára
Að lokum

Valur byggir á afar sterkum grunni. Á síðasta tímabili fékk liðið á sig fæst mörk allra í Olís-deildinni og var með bestu hlutfallsmarkvörsluna. Þá skoruðu Valsmenn flest mörk eftir hraðaupphlaup. Valur var aðeins með sjöttu bestu skotnýtinguna á síðasta tímabili og geta gert betur á því sviði.

Vörn og markvarsla verða áfram aðal Valsliðsins og markvarslan veikist ekkert með innkomu Hreiðars. Þeir Daníel Freyr Andrésson mynda besta markvarðapar deildarinnar.

Valsmenn eiga lykilmenn inni en þegar þeir snúa aftur er breiddin í liðinu svakaleg og varla veikan blett að finna á því. Enn meira mun mæða á Ými Erni Gíslasyni eftir að bróðir hans lagði skóna á hilluna. Valsmenn eiga reyndar þriðja Gíslasoninn á lager, Tjörva Tý, sem mun vera Ými til halds og trausts ásamt Þorgils Jóni Svölu Baldurssyni.

Valur verður í baráttu um alla titla í vetur. Annað kæmi allavega mikið á óvart.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×