Handbolti

Olís­deildar­spáin 2019/20: Fjölnis­liðið stoppar stutt á meðal þeirra bestu

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Fjölnismenn unnu Grill 66 deild karla á síðustu leiktíð.
Fjölnismenn unnu Grill 66 deild karla á síðustu leiktíð. Mynd/Fjölnir/Þorgils Garðar Gunnþórsson
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins sautján daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að fyrsta liðinu í spá okkar.

Spá Vísis fyrir Olís deild karla 2019-20

1. sæti

2. sæti

3. sæti

4. sæti

5. sæti

6. sæti

7. sæti

8. sæti

9. sæti

10. sæti

11. sæti - (23. ágúst)

12. sæti - Fjölnir

Íþróttadeild spáir Fjölni tólfta og neðsta sæti og að nýliðarnir stoppi stutt við í Olís-deildinni.

Eftir að hafa verið nokkrum sinnum nálægt því að komast upp í efstu deild tókst Fjölni það loks vorið 2017. Fjölnismenn léku í fyrsta sinn í efstu deild tímabilið 2017-18. Þá enduðu þeir í ellefta og næstneðsta sæti og féllu.

Þrátt fyrir að hafa misst sterka leikmenn á borð við Kristján Örn Kristjánsson og Svein Jóhannsson vann Fjölnir Grill 66-deildina örugglega á síðasta tímabili. Fjölnismenn fengu 33 stig af 36 mögulegum, sjö stigum meira en liðið í 2. sæti. Þeir komust líka í undanúrslit í Coca Cola-bikarnum þar sem þeir töpuðu fyrir Valsmönnum á umdeildan hátt.

Fjölnir mætir nánast með sama lið til leiks og á síðasta tímabili. Liðið er ungt og breiddin ekki mikil. Leikmenn á borð við Breka Dagsson og Björgvin Pál Rúnarsson búa hins vegar af reynslunni í Olís-deildinni fyrir tveimur árum.

Komnir/Farnir:

Engar breytingar á leikmannahópnum.

Fjölnir varð í 4. sæti yfir stolna bolta í Olís deild karla 2017-18.Vísir/Ernir
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Fjölnir lék síðast í Olís deildinni veturinn 2017 til 2018 þar sem liðið varð að sætta sig við næstsíðasta sætið og fall úr deildinni. Fjölnismenn voru tveimur stigum frá öruggu sæti en liðið vann þó bara 3 af 22 leikjum sínum.

Sóknarleikur Fjölnis 2017/18 í tölum HBStatz:

Mörk skoruð í leik - 10. sæti (26,4)

Skotnýting - 11. sæti (54,2%)

Vítanýting - 10. sæti (67,5%)

Hraðaupphlaupsmörk - 10. sæti (61)

Stoðsendingar í leik - 9. sæti (10,3)

Tapaðir boltar í leik - 10. sæti (10,6)

Vörn og markvarsla Fjölnis 2017/18 í tölum HBStatz:

Mörk fengin á sig í leik - 10. sæti (29,9)

Hlutfallsmarkvarsla - 11. sæti (26,9%)

Varin víti - 11. sæti (10)

Stolnir boltar - 4. sæti (98)

Varin skot í vörn - 12. sæti (32)

Lögleg stopp í leik - 8. sæti (17,5)

Breki Dagsson er prímusmótorinn í sóknarleik Fjölnis.Mynd/S2 Sport
Líklegt byrjunarlið Fjölnis í vetur

Markvörður - Bjarki Snær Jónsson - 25 ára

Vinstra horn - Brynjar Loftsson - 22 ára

Vinstri skytta - Björgvin Páll Rúnarsson - 23 ára

Miðja - Breki Dagsson - 24 ára

Hægri skytta - Hafsteinn Ramos Rocha - 19 ára

Hægra horn - Bergur Elí Rúnarsson - 24 ára

Lína - Arnar Máni Rúnarsson - 19 ára

Varnarmaður - Sveinn Þorgeirsson - 32 ára

Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha gæti sprungið út í vetur.Mynd/S2 Sport
Fylgist með



Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha (f. 2000) var í U-18 ára landsliðinu sem vann silfur á EM í fyrra og lék með sama hópi á HM í sumar.

Hafsteinn er efnileg og hávaxin örvhent skytta sem gæti látið að sér kveða í vetur. Á ýmislegt eftir ólært og getur tekið betri ákvarðanir en hæfileikarnir eru til staðar.

Kári Garðarsson gerði frábæra hluti með kvennalið Gróttu.Vísir/Ernir
Þjálfarinn



Kári Garðarsson er á sínu öðru tímabili með Fjölni. Á því fyrsta vann liðið Grill 66 deildina örugglega og var óheppið að komast ekki í bikarúrslit.

Kári var áður þjálfari hjá Gróttu. Hann náði frábærum árangri með kvennalið félagsins sem hann gerði tvisvar sinnum að Íslandsmeisturum, einu sinni að bikarmeisturum og einu sinni að deildarmeisturum. Hann stýrði karlaliði Gróttu tímabilið 2017-18 og er enn íþróttastjóri félagsins.

Hvað segir sérfræðingurinn?„Það eru furðulegir hlutir að gerast í Grafarvoginum vil ég meina. Það er ekkert að frétta á leikmannamarkaðnum sem er mjög óvenjulegt hjá liði sem er að koma upp í deildina,“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur hjá Seinni bylgjunni.

„Það er mikill munur á þessum deildum og maður hefði haldið að liðið þyrfti að styrkja sig um einhverja leikmenn. Það er kannski ekki heillandi að koma í Grafarvoginn þar sem er aðstöðuleysi og svona. Ég veit það ekki.

„Þeir eru samt með ungt og skemmtilegt lið og mikið heimamenn. Þeir gerðu ekki frábæra hluti er þeir komu upp síðast en hafa leikmenn eins og Breka og Björgvin sem og Hafþór. Hafa flotta útilínu en ég held að þetta verði langt og erfitt tímabil hjá þeim.“

Fjölnir var síðast í Olís deildinni tímabilið 2017-18 en endurheimti strax sætið sitt eftir aðeins eitt ár í Grill 66 deild karla.Mynd/Fjölnir/Þorgils Garðar Gunnþórsson
Hversu langt er síðan að Fjölnir ...

... varð Íslandsmeistari: Aldrei

... varð deildarmeistari: Aldrei

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: Aldrei

... varð bikarmeistari: Aldrei

... komst í bikarúrslit: Aldrei

... komst í úrslitakeppni: Aldrei

... komst í undanúrslit: Aldrei

... komst í lokaúrslit: Aldrei

... féll úr deildinni: 1 ár (2018)

... kom upp í deildina: Nýliði í ár

Gengi Fjölnis í deildakeppninni undanfarin átta tímabil

2018-19  B-deild (1. sæti)

2017-18  11. sæti í deildinni

2016-17  B-deild (1. sæti)

2015-16  B-deild (2. sæti)

2014-15  B-deild (3. sæti)

2013-14  B-deild (9. sæti)

2012-13  B-deild (7. sæti)

2011-12  B-deild (6. sæti)

Gengi Fjölnis í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil

2018-19  B-deild

2017-18  Ekki í úrslitakeppni

2016-17  B-deild

2015-16  B-deild

2014-15  B-deild

2013-14  B-deild

2012-13  B-deild

2011-12  B-deild

Brynjar Loftsson tekur við bikarnum síðasta vor.Mynd/Fjölnir/Þorgils Garðar Gunnþórsson
Að lokum

Fallbarátta verður hlutskipti Fjölnismanna sem yrðu væntanlega hæstánægðir með 10. sætið.

Fjölnir er með nokkuð þéttan kjarna heimamanna og þegar liðið var í Olís-deildinni tímabilið 2017-18 veitti það flestum verðuga keppni. Herslumuninn vantaði hins vegar alltof oft. Fjölnismenn vilja einnig væntanlega sleppa við fíaskóið sem var utan vallar tímabilið 2017-18.

Fjölnir hefði þurft að styrkja hópinn fyrir tímabilið og hætt er við að of fáir leikmenn þurfi að bera of þungar byrðar eins og síðast þegar liðið var í Olís-deildinni. Markvarslan er einnig stórt spurningarmerki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×