Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Herslumuninn hefur vantað hjá ÍR-ingum undanfarin ár

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Bjarni Fritzson hefur búið til stemmningslið í Breiðholti.
Bjarni Fritzson hefur búið til stemmningslið í Breiðholti. Vísir/Bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins tíu daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að fimmta liðinu í spá okkar.

Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:

1. sæti

2. sæti

3. sæti

4. sæti

5. sæti

6. sæti

7. sæti - (29. ágúst)

8. sæti - ÍR

9. sæti - KA

10. sæti - HK

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Hafþór Már Vignisson í leik með Akureyri á móti ÍR í fyrra en hann er nú kominn í Breiðholtið.Vísir/Bára
Íþróttadeild spáir ÍR-ingum áttunda sæti deildarinnar, einu sæti neðar en liðið endaði á síðasta tímabili. ÍR-ingar eru á sínu þriðja tímabili í röð í Olís-deildinni. Liðið komst í úrslitakeppnina 2018 og 2019 og á síðasta tímabili tapaði ÍR báðum leikjunum gegn Íslandsmeisturum Selfoss í 8-liða úrslitunum með einu marki.

ÍR-liðið er ágætlega mannað og með fína blöndu eldri og reyndari og ungra og efnilegra leikmanna. Herslumuninn hefur þó vantað undanfarin ár.

ÍR fékk aðeins einu stigi meira á síðasta tímabili en tímabilið þar á undan. ÍR-ingar fengu aðeins þrjú stig gegn liðum sem enduðu fyrir ofan þá 2017-18 og sex stig á síðasta tímabili. Ef ÍR ætlar að komast ofar þurfa þeir að ná í fleiri stig gegn bestu liðunum.

ÍR teflir fram sama liði og á síðasta tímabili nema hvað Hafþór Már Vignisson kemur inn í hægri skyttustöðuna í stað Péturs Árna Haukssonar og Sigurður Ingiberg Ólafsson í markið í staðinn fyrir Stephen Nielsen. ÍR-ingar verða að fá betri markvörslu en á síðasta tímabili. Aðeins fjögur lið voru með verri hlutfallsmarkvörslu en ÍR í fyrra.

Komnir/Farnir:

Komnir:

Hafþór Már Vignisson frá Akureyri

Sigurður Ingiberg Ólafsson úr Stjörnunni

Farnir:

Sveinn Jóhannsson til SönderjyskE í Danmörku

Pétur Árni Hauksson hættur

Stephen Nielsen

ÍR-ingar í leik á móti verðandi Íslandsmeisturum Selfoss.Vísir/Vilhelm
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur ÍR 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 7. sæti (26,9)

Skotnýting - 8. sæti (57,9%)

Vítanýting - 7. sæti (72,6%)

Hraðaupphlaupsmörk - 3. sæti (72)

Stoðsendingar í leik - 6. sæti (9,5)

Tapaðir boltar í leik - 6. sæti (8,3)

Vörn og markvarsla ÍR 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 9. sæti (27,2)

Hlutfallsmarkvarsla - 8. sæti (30,2%)

Varin víti - 8. sæti (12)

Stolnir boltar - 11. sæti (57)

Varin skot í vörn - 7. sæti (47)

Lögleg stopp í leik - 6. sæti (19,5)

Reynsluboltinn og silfurdrengurinn Sturla Ásgeirsson.Vísir/Bára
Líklegt byrjunarlið ÍR í vetur

Markvörður - Sigurður Ingiberg Ólafsson - 27 ára

Vinstra horn - Sturla Ásgeirsson - 39 ára

Vinstri skytta - Björgvin Þór Hólmgeirsson - 32 ára

Miðja - Sveinn Andri Sveinsson - 20 ára

Hægri skytta - Hafþór Már Vignisson - 20 ára

Hægra horn - Kristján Orri Jóhannsson - 26 ára

Lína - Þrándur Gíslason Roth - 30 ára

Varnarmaður - Aron Örn Ægisson - 27 ára

Arnar Freyr Guðmundsson lofar góðu.Vísir/Bára
Fylgist með

Arnar Freyr Guðmundsson (f. 1998) spilaði talsvert á síðasta tímabili og átti fína spretti. Með góð skot og getur skilað mörkum.

Arnar hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands en gaf ekki kost á sér í U-21 árs landsliðið fyrir HM á Spáni í sumar.

Bjarni Fritzson vill að nái sömu hæðum og þegar hann lék með liðinu.vísir/bára
Þjálfarinn

Bjarni Fritzson er við stjórnvölinn hjá ÍR eins og síðustu ár. Þjálfaði ÍR-liðið fyrst með Einari Hólmgeirssyni en er að hefja sitt fjórða tímabil sem eini aðalþjálfari liðsins. Hann var áður spilandi þjálfari hjá Akureyri. 

Bjarni átti farsælan feril sem leikmaður og varð m.a. bikarmeistari með ÍR 2005. Hann lék 43 landsleiki og var fimmtándi maður í silfurliðinu á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Bjarni lék með ÍR, FH og Akureyri hér heima og sem atvinnumaður erlendis.



Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: ÍR
Hvað segir sérfræðingurinn?„Síðustu tvö tímabil hjá ÍR hafa verið nákvæmlega eins og þeir hafa verið að berjast um að komast í úrslitakeppnina og dottið svo út í átta liða úrslitunum. Ég veit að Bjarni vill meira og Breiðholtið vill meira,“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um ÍR-liðið.

„Ég hef alltaf verið smá skotinn í ÍR og mér finnst þetta vera skemmtilegt lið, hraðir og snöggir. Þeir fengu einn besta íslenska bitann á markaðnum í Hafþóri Vignis og ég vil meina að það séu frábær kaup. Það er öðruvísi leikmaður en Pétur Árni sem er hættur. Hann er bæði frábær varnarmaður og frábær sóknarmaður og var að spila mjög vel með U21 árs liðinu,“ sagði Jóhann Gunnar.

„Maður er búinn að heyra eitthvað um hræringar í markmannsmálum og það verður gaman að sjá hver stendur í markinu. Ég veit að Bjarni vill fara ofar og ég geri ráð fyrir því ef allir haldast nokkuð heilir að þeir geri alvöru atlögu að topp fimm,“ sagði Jóhann Gunnar.

ÍR-ingar urðu bikarmeistarar 2013.Vísir/Valli
Hversu langt síðan að ÍR ...

... varð Íslandsmeistari: Aldrei

... varð deildarmeistari: Aldrei

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 4 ár (2015)

... varð bikarmeistari: 6 ár (2013)

... komst í bikarúrslit: 5 ár (2014)

... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019)

... komst í undanúrslit: 4 ár (2015)

... komst í lokaúrslit: 16 ár (2003)

... féll úr deildinni: 3 ár (2016)

... kom upp í deildina: 1 ár (2018)

Gengi ÍR í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  7. sæti í deildinni

2017-18  8. sæti í deildinni

2016-17  B-deild (2. sæti)

2015-16  9. sæti í deildinni

2014-15  3. sæti í deildinni

2013-14  7. sæti í deildinni

2012-13  4. sæti í deildinni

2011-12  B-deild (1. sæti)

Gengi ÍR í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  Átta liða úrslit

2017-18  Átta liða úrslit

2016-17  B-deild

2015-16  Ekki í úrslitakeppni

2014-15  Undanúrslit

2013-14  Ekki í úrslitakeppni

2012-13  Undanúrslit

2011-12  B-deild

Markamaskínan Björgvin Þór Hólmgeirsson.Vísir/Bára
Að lokum

ÍR vill betri árangur en síðustu ár en það er erfitt að sjá liðið taka mörg skref fram á við í vetur. Hæfileikarnir eru til staðar en Bjarni þarf að herða skrúfurnar.

Sóknarleikurinn hefur verið nokkuð tilviljanakenndur og byggist mikið upp á einstaklingsframtaki. Sveinn Andri Sveinsson átti fínt fyrsta tímabil í Olís-deildinni en leikstjórnandinn bætti sig ekki í fyrra. Hann þarf að skila fleiri mörkum og stoðsendingum en á síðasta tímabili.

Stóra ef-ið hjá ÍR er svo Björgvin Hólmgeirsson og heilsa hans. Í toppformi og nokkuð laus við meiðsli er hann einn besti sóknarmaður deildarinnar og getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×