Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Meiri óvissa hjá Aftureldingu en síðustu ár

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Afturelding hefur verið í efri helmingi Olís-deildarinnar undanfarin ár.
Afturelding hefur verið í efri helmingi Olís-deildarinnar undanfarin ár. vísir/bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins átta daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að sjöunda liðinu í spá okkar.

Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:

1. sæti

2. sæti

3. sæti

4. sæti

5. sæti - (2. september)

6. sæti - Afturelding

7. sæti - Stjarnan

8. sæti - ÍR

9. sæti - KA

10. sæti - HK

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Elvar Ásgeirsson er farinn til Stuttgart í Þýskalandi.vísir/bára
Íþróttadeild spáir því að Afturelding endi í sjötta sæti deildarinnar líkt og síðustu tvö ár. Mosfellingar eru á sínu sjötta tímabili í röð í Olís-deildinni undir stjórn Einars Andra Einarssonar.

Fyrstu tvö tímabilin voru frábær þar sem Afturelding komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. Tímabilið 2016-17 komust Mosfellingar svo í bikarúrslit. Síðustu tvö tímabil hefur liðið gefið aðeins eftir og endað í 6. sæti. Afturelding er samt orðið stöðugt efstu deildarlið sem það hefur ekki verið frá því um aldamótin.

Afturelding missti prímusmótorinn í sókninni, Elvar Ásgeirsson, og sinn jafnbesta mann síðan liðið kom upp, Árna Braga Eyjólfsson. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson og Karolis Stropus eiga að fylla skarð Elvars í sameiningu og Guðmundur Árni Ólafsson tekur stöðu Árna Braga í hægra horninu.

Mosfellingar hafa verið afar óheppnir með meiðsli lykilmanna og Einar Andri vonast væntanlega til að geta teflt sínu sterkasta liði oftar fram en undanfarin ár.



Komnir/Farnir:

Komnir:

Karolis Stropus frá Litháen

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson frá Fram

Sveinn Jose Rivera frá Val

Guðmundur Árni Ólafsson frá HK

Farnir:

Finnur Ingi Stefansson til Vals

Árni Bragi Eyjólfsson til KIF Kolding

Elvar Ásgeirsson til TVB Stuttgart

Kristinn Hrannar Bjarkason til Fram

Emils Kurzmineisk til Lettlands

Pálmar Pétursson hættur

Sturla Magnusson til Vals

Arnór Freyr Stefánsson átti gott tímabil í fyrra.vísir/bára
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Aftureldingar 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 6. sæti (27,0)

Skotnýting - 7. sæti (58,1%)

Vítanýting - 10. sæti (69%)

Hraðaupphlaupsmörk - 10. sæti (49)

Stoðsendingar í leik - 5. sæti (9,8)

Tapaðir boltar í leik - 4. sæti (8,0)

Vörn og markvarsla Aftureldingar 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 6. sæti (26,5)

Hlutfallsmarkvarsla - 5. sæti (31,7%)

Varin víti - 6. sæti (13)

Stolnir boltar - 5. sæti (81)

Varin skot í vörn - 3. sæti (59)

Lögleg stopp í leik - 9. sæti (17,3)

Tumi Steinn Rúnarsson fær aukna ábyrgð í vetur.vísir/daníel
Líklegt byrjunarlið Aftureldingar í vetur:



Markvörður - Arnór Freyr Stefánsson - 28 ára

Vinstra horn - Júlíus Þórir Stefánsson - 28 ára

Vinstri skytta - Þorsteinn Gauti Hjálmarsson - 24 ára

Miðja - Tumi Steinn Rúnarsson - 19 ára

Hægri skytta - Birkir Benediktsson - 23 ára

Hægra horn - Guðmundur Árni Ólafsson - 29 ára

Lína - Einar Ingi Hrafnsson - 35 ára

Varnarmaður - Böðvar Páll Ásgeirsson - 25 ára

Guðmundur Árni Ólafsson skrifaði undir þriggja ára samning við Aftureldingu í vor.mynd/afturelding
Fylgist með

Guðmundur Árni Ólafsson (f. 1990) er ekki ungur og efnilegur leikmaður eins og flestir í þessum flokki. Hann er hins vegar kominn á fullt aftur í handboltann eftir hlé og hefur litið afar vel út á undirbúningstímabilinu. Guðmundur Árni lék nánast ekkert tímabilið 2017-18 og á síðasta tímabili lék hann jafnan sem skytta með HK í Grill 66 deildinni.

Guðmundur Árni verður á sínum stað í hægra horninu í vetur og hann er frábær hornamaður. Það er ekki svo langt síðan Selfyssingurinn lék sem atvinnumaður og bankaði fast á dyrnar í A-landsliðinu. Vonandi kemst Guðmundur Árni aftur á flug því fáa leikmenn er skemmtilegra að horfa á en hann.

Þrátt fyrir ungan aldur er Einar Andri Einarsson gríðarlega reyndur þjálfari.vísir/bára
Þjálfarinn

Einar Andri Einarsson er að hefja sitt sjötta tímabil sem þjálfari Aftureldingar. Hann hefur fest Mosfellinga í sessi í efstu deild en dreymir væntanlega um að ná sömu hæðum og fyrstu ár sín með liðið.

Prestssonurinn var áður þjálfari FH og gerði liðið að Íslandsmeisturum ásamt Kristjáni Arasyni 2011. Árið eftir komust FH-ingar aftur í úrslit. Einar Andri á tíu tímabil að baki sem þjálfari í efstu deild og lið hans hafa níu sinnum komist í úrslitakeppnina.



Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: Afturelding
Hvað segir sérfræðingurinn?„Það er áhugavert tímabil framundan hjá Aftureldingu. Þeir missa mikið í Elvari [Ásgeirssyni] sem er búinn að vera burðarrás í liðinu síðastliðinn ár. Svo eru Árni Bragi [Eyjólfsson] og Finnur [Ingi Stefánsson] farnir úr hægra horninu. Á sama tíma mun mæða mikið á Tuma Steini sem kom eins og ferskir vindar inn í þetta lið í fyrra,“ segir Guðlaugur Arnarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Aftureldingarliðið.

„Þeir eru einnig að fá mjög sterkan útlending sem kom sterkt inn í deildina með Víkingi fyrir nokkrum árum. Svo fá þeir líka inn ungan línumann í Jose sem mun bæta breiddina hjá þeim. Það mæðir mikið á Einari Andri að púsla saman breyttu liði. Nú er hann með þyngri leikmenn og það þýðir væntanlega þyngri bolti. Áhugaverðir tímar framundan,“ sagði Guðlaugur Arnarsson.

Afturelding komst síðast í lokaúrslit fyrir þremur árum.vísir/anton brink
Hversu langt síðan að Afturelding ...

... varð Íslandsmeistari: 20 ár (1999)

... varð deildarmeistari: 19 ár (2000)

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 3 ár (2016)

... varð bikarmeistari: 20 ár (1999)

... komst í bikarúrslit: 2 ár (2017)

... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019)

... komst í undanúrslit: 2 ár (2017)

... komst í lokaúrslit: 3 ár (2016)

... féll úr deildinni: 6 ár (2013)

... kom upp í deildina: 5 ár (2014)

Gengi Aftureldingar í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  6. sæti í deildinni

2017-18  6. sæti í deildinni

2016-17  4. sæti í deildinni

2015-16  3. sæti í deildinni

2014-15  2. sæti í deildinni

2013-14  B-deild (1. sæti)

2012-13  8. sæti í deildinni

2011-12  7. sæti í deildinni

Gengi Aftureldingar í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  Átta liða úrslit

2017-18  Átta liða úrslit

2016-17  Undanúrslit

2015-16  Lokaúrslit

2014-15  Lokaúrslit

2013-14  B-deild

2012-13  Ekki í úrslitakeppni

2011-12  Ekki í úrslitakeppni

Einar Ingi Hrafnsson í kröppum dansi.vísir/daníel
Að lokum

Óvissan er kannski meiri hjá Aftureldingu en síðustu ár. Hún tengist aðallega því hvernig gengur að fylla skarð Elvars sem var bæði marka- og stoðsendingahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili og mikið mæddi á honum. Þorsteinn Gauti var góður hjá Fram þar sem hann var með ótakmarkað skotleyfi en þetta er öðruvísi áskorun.

Arnór Freyr Stefánsson er einn besti markvörður deildarinnar en honum til halds og trausts eru óreyndir strákar. Arnór missti af um þriðjungi síðasta tímabils vegna meiðsla og Afturelding má ekki við því í vetur. Svo þarf Birkir Benediktsson að haldast heill sem er bjartsýni því seinheppnari leikmenn eru vandfundnir. Birkir er gríðarlega öflug skytta og það væri gaman að sjá hann eiga eitt dúndurtímabil.

Afturelding er með einn besta línumann deildarinnar í sínum röðum, Einar Inga Hrafnsson. Síðustu tvö tímabil hefur hann varla fengið boltann og verið grátlega illa nýttur. Mosfellingar þurfa að bæta úr því í vetur.

Sjötta sætið hefur orðið niðurstaðan undanfarin tvö ár og það er erfitt að sjá Aftureldingu ógna liðunum sem er spáð efstu fimm sætunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×