Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Þrjú tímabil án Íslandsmeistaratitils þykir vera mikið á Ásvöllum

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Haukar urðu deildarmeistarar á síðasta tímabili.
Haukar urðu deildarmeistarar á síðasta tímabili. vísir/bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins fimm daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að níunda liðinu í spá okkar.

Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:

1. sæti

2. sæti

3. sæti - (4. september)

4. sæti - Haukar

5. sæti - Selfoss

6. sæti - Afturelding

7. sæti - Stjarnan

8. sæti - ÍR

9. sæti - KA

10. sæti - HK

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Landsliðsmaðurinn Daníel Þór Ingason er farinn til danska liðsins Ribe-Esbjerg.vísir/daníel
Íþróttadeild spáir því að Hauka endi í fjórða sæti deildarinnar. Haukar urðu deildarmeistarar á síðasta tímabili. Þeir komust í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn en töpuðu fyrir Selfyssingum, 3-1.

Haukar eru stórveldi 21. aldarinnar í íslenskum karlahandbolta. Þeir hafa hins vegar ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn síðan 2016 sem þykir langur tími á Ásvöllum.

Haukar misstu sinn besta mann, Daníel Þór Ingason, til Ribe-Esbjerg og hafa ekki fengið neinn leikmann í hans stöðu. Haukar munu því leggja traust sitt á Adam Hauk Baumruk í vetur. Breiddin hægra megin á vellinum eykst hins vegar með komu Ólafs Ægis Ólafssonar.

Þá er Vignir Svavarsson kominn aftur til Hauka eftir 14 ár í atvinnumennsku. Vignir hefur sjaldan verið í betra formi og Haukar eru með ógnvænlegt línumannapar í honum og Heimi Óla Heimissyni.



Komnir/Farnir:

Komnir:

Vignir Svavarsson, Team Tvis Holstebro, Danmörk

Ólafur Ægir Ólafsson, Lakers Stafa, Sviss

Farnir:

Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg, Danmörk

Jón Þorbjörn Jóhannsson, hættur

Grétar Ari Guðjónsson varði vel á síðasta tímabili.vísir/bára
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Hauka 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 3. sæti (28,2)

Skotnýting - 1. sæti (61,3%)

Vítanýting - 7. sæti (72,6%)

Hraðaupphlaupsmörk - 4. sæti (65)

Stoðsendingar í leik - 1. sæti (11,8)

Tapaðir boltar í leik - 12. sæti (10,8)

Vörn og markvarsla Hauka 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 5. sæti (26,3)

Hlutfallsmarkvarsla - 2. sæti (36,3%)

Varin víti - 6. sæti (13)

Stolnir boltar - 7. sæti (74)

Varin skot í vörn - 6. sæti (50)

Lögleg stopp í leik - 4. sæti (20,2)



Hornamaðurinn knái, Orri Freyr Þorkelsson.vísir/bára
Líklegt byrjunarlið Hauka í vetur

Markvörður - Grétar Ari Guðjónsson - 23 ára

Vinstra horn - Orri Freyr Þorkelsson - 20 ára

Vinstri skytta - Adam Haukur Baumruk - 25 ára

Miðja - Tjörvi Þorgeirsson - 29 ára

Hægri skytta - Ásgeir Örn Hallgrímsson - 35 ára

Hægra horn - Brynjólfur Snær Brynjólfsson - 26 ára

Lína - Vignir Svavarsson - 39 ára

Varnarmaður - Darri Aronsson - 20 ára

Darri Aronsson hissa á svip.vísir/bára
Fylgist með

Darri Aronsson (f. 1999) fékk nokkuð stórt hlutverk í varnarleik Hauka á síðasta tímabili. Darri er efni í góðan varnarmann þótt hann sé enn hrár og frekar klaufskur.

Hann fær væntanlega að spreyta sig meira í sókninni í vetur og gæti fengið tækifæri þegar Adam Haukur hvílir.

Gunnar Magnússon hefur tvisvar sinnum gert lið að Íslandsmeisturum á þjálfaraferlinum.vísir/vilhelm
Þjálfarinn

Gunnar Magnússon er að hefja sitt fimmta tímabil í röð sem þjálfari Hauka. Undir hans stjórn hafa Haukar einu sinni orðið Íslandsmeistarar og tvisvar sinnum deildarmeistarar.

Gunnar hefur marga fjöruna sopið í þjálfun þrátt fyrir ungan aldur. Sextán ár eru síðan hann stýrði liði (Víkingi) í fyrsta sinn í efstu deild. Auk Hauka, Víkings hefur Gunnar þjálfað HK og ÍBV sem hann gerði að Íslands- og bikarmeisturum. Hann þjálfaði einnig um tíma í Noregi. Gunnar er aðstoðarmaður Guðmundar Guðmundssonar með karlalandsliðið og er auk þess yfirþjálfari yngri landsliða Íslands.





Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: Haukar
Hvað segir sérfræðingurinn?„Frábært tímabil hjá þeim í fyrra þegar maður kíkir aðeins yfir þetta. Þeir unnu deildarmeistaratitilinn og eru með spennandi lið. Þeir fá Vigni til baka sem eru stærstu félagsskiptin og stærsta nafnið sem er að koma“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Haukaliðið.

„Það er frábært að fá Vigni aftur og hann virkar í hörku standi. Svo fá þeir Ólaf Ægi í hægri skyttuna sem er mjög klókur og góður varnarmaður. Ég held að hann passi mjög vel inn í handboltaspekina hans Gunnars Magg,“ sagði Jóhann Gunnar.

„Þeir missa Daníel Inga sem er mikill missir því hann var frábær í bæði vörn og sókn. Adam er þarna og Darri hefur verið að spila sókn og ég sé liðið ekki veikjast mikið þótt þeir sakni Daníels. Haukar eru alltaf Haukar. Þeir eru massífir, með tvo menn í hverri stöðu og núna ætla þeir væntanlega að vaða beint í Íslandsmeistaratitilinn sem þeir voru mjög nálægt að ná síðast,“ sagði Jóhann Gunnar.

„Það er síðan alltaf spurningarmerki með Tjörva sem er heilinn í liðinu. Hann er búinn að vera mikið meiddur en ef hann er með og allir skila sínu þá eru Haukar enn eitt liðið sem mun berjast  um titilinn,“ sagði Jóhann Gunnar.

Haukar fagna Íslandsmeistaratitlinum 2016.vísir/vilhelm
Hversu langt síðan að Haukaliðið ...

... varð Íslandsmeistari: 3 ár (2016)

... varð deildarmeistari: 0 ár (2019)

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2019)

... varð bikarmeistari: 5 ár (2014)

... komst í bikarúrslit: 5 ár (2014)

... komst ekki í úrslitakeppni: 8 ár (2011)

... komst í undanúrslit: 0 ár (2019)

... komst í lokaúrslit: 0 ár (2019)

... féll úr deildinni: 32 ár (1987)

... kom upp í deildina: 29 ár (1990)

Gengi Haukar í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  Deildarmeistari

2017-18  5. sæti í deildinni

2016-17  3. sæti í deildinni

2015-16  Deildarmeistari

2014-15  5. sæti í deildinni

2013-14  Deildarmeistari

2012-13  Deildarmeistari

2011-12  Deildarmeistari

Gengi Haukar í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  2. sæti

2017-18  Undanúrslit

2016-17  Átta liða úrslit

2015-16  Íslandsmeistari

2014-15  Íslandsmeistari

2013-14  2. sæti

2012-13  2. sæti

2011-12  Undanúrslit

Fögnuður á Haukabekknum.vísir/daníel
Að lokum

Líkt og Íslandsmeistarar Selfoss hafa Haukar misst sinn besta leikmann og ekki fyllt skarð hans. Haukar búa hins vegar svo vel að eiga Adam Hauk sem fer væntanlega í svipað hlutverk og hann var í áður en Daníel kom. Adam er frábær í seinni bylgju í hraðaupphlaupum og Haukar verða að nýta hana til hins ítrasta því uppstilltur sóknarleikur liðsins á það til að vera stirður.

Haukar voru með næstbestu markvörsluna í deildinni á síðasta tímabili og þeir Grétar Ari Guðjónsson og Andri Sigmarsson Scheving þurfa að halda uppteknum hætti í vetur. Vörnin verður líka að vera sterk. Varnarleikur Hauka breytist þó væntanlega talsvert við brotthvarf Daníels.

Metnaðurinn á Ásvöllum er alltaf mikill og það breytist ekkert. Haukar vilja berjast um titla og verða í baráttunni um þá í vetur.

Frammistaðan á undirbúningstímabilinu hefur þó ekki verið neitt sérstök og þá gefur spilamennskan gegn Plzen í EHF-bikarnum ekki mikla ástæðu til bjartsýni. En Haukar verða alltaf sterkir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×