Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Stjarnan vill meira en meðalmennskuna síðustu ár

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Stjörnumenn eru að hefja sitt fjórða tímabil í röð í Olís-deildinni.
Stjörnumenn eru að hefja sitt fjórða tímabil í röð í Olís-deildinni. vísir/bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins níu daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að sjötta liðinu í spá okkar.

Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:

1. sæti

2. sæti

3. sæti

4. sæti

5. sæti

6. sæti - (30. ágúst)

7. sæti - Stjarnan

8. sæti - ÍR

9. sæti - KA

10. sæti - HK

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Tandri Már Konráðsson er kominn aftur í Stjörnuna eftir átta ára fjarveru.vísir/valli
Íþróttadeild spáir Stjörnumönnum sjöunda sæti deildarinnar, einu sæti ofar en þeir enduðu á síðasta tímabili. Meðalmennskan hefur ráðið ríkjum undanfarin ár í Garðabænum og stemmningin fyrir liðinu hefur verið við frostmark. Stjarnan var nálægt því að falla tímabilið 2016-17 en komst í úrslitakeppnina 2017-18 og 2018-19. Á síðasta tímabili unnu Stjörnumenn leik í úrslitakeppni sem þeir höfðu ekki gert í 19 ár.

Stjarnan vill meira og kaupin á Ólafi Bjarka Ragnarssyni og Tandra Má Konráðssyni sýna það. Þeir fylla skörð Arons Dags Pálssonar og Egils Magnússon sem eru farnir. Ólafur Bjarki og Tandri eru tveir af fimm í leikmannahópi Stjörnunnar sem voru í Íslandsmeistaraliði HK 2012.

Stjarnan var með þriðju bestu hlutfallsmarkvörsluna í Olís-deildinni á síðasta tímabili en báðir markverðir liðsins frá því í fyrra eru horfnir á braut. Í staðinn eru komnir Brynjar Darri Baldursson, sem hefur búið erlendis undanfarin ár, og Stephen Nielsen frá ÍR.

Rúnar Sigtryggsson er mjög fær þjálfari, leikmannahópurinn er sterkur, reynslan í liðinu er mikil en það þarf að kveikja einhverja glóð til að Stjarnan taki framförum og rífi sig upp úr meðalmennskunni.

Komnir/Farnir:

Komnir:

Ólafur Bjarki Ragnarsson frá West Wien 

Tandri Már Konráðsson frá Skjern

Andri Þór Helgason frá Fram

Hannes Grimm frá Gróttu

Stephen Nielsen frá ÍR

Brynjar Darri Baldursson

Farnir:

Egill Magnússon til FH

Aron Dagur Pálsson til Alingsås

Sigurður Ingiberg Ólafsson til ÍR

Andri Hjartar Grétarsson hættur

Garðar Benedikt Sigurjónsson hættur

Sveinbjörn Pétursson hættur

Bjarki Már Gunnarsson, sakleysið uppmálað.vísir/bára
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Stjörnunnar 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 8. sæti (26,6)

Skotnýting - 11. sæti (55,1%)

Vítanýting - 9. sæti (71,9%)

Hraðaupphlaupsmörk - 9. sæti (52)

Stoðsendingar í leik - 7. sæti (9,3)

Tapaðir boltar í leik - 6. sæti (8,3)

Vörn og markvarsla Stjörnunnar 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 10. sæti (28,2)

Hlutfallsmarkvarsla - 3. sæti (32,5%)

Varin víti - 3. sæti (15)

Stolnir boltar - 12. sæti (53)

Varin skot í vörn - 4. sæti (51)

Lögleg stopp í leik - 10. sæti (16,7)

Ólafur Bjarki Ragnarsson verður væntanlega í stóru hlutverki hjá Stjörnunni. Hann missir hins vegar af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla.vísir/getty
Líklegt byrjunarlið Stjörnunnar í vetur:

Markvörður - Stephen Nielsen - 34 ára

Vinstra horn - Andri Þór Helgason - 25 ára

Vinstri skytta - Tandri Már Konráðsson - 29 ára

Miðja - Ólafur Bjarki Ragnarsson - 30 ára

Hægri skytta - Ari Magnús Þorgeirsson - 33 ára

Hægra horn - Leó Snær Pétursson - 27 ára

Lína - Hannes Grimm - 20 ára

Varnarmaður - Bjarki Már Gunnarsson - 30 ára

Andri Már Rúnarsson er af miklu handboltakyni.vísir/bára
Fylgist með

Andri Már Rúnarsson (f. 2002) öðlaðist dýrmæta reynslu á síðasta tímabili. Hann fékk tækifæri í Stjörnusókninni og var oft látinn inn á þegar Garðbæingar spiluðu óhefðbundna útgáfu af sjö á móti sex.

Andri er skynsamur leikstjórnandi, með góða tækni, býr yfir miklum leikskilningi og er með handboltagenin. Hann er þó enn frekar rýr og á eftir að bæta líkamlegan styrk.

Rúnar Sigtryggsson þjálfaði lengi í Þýskalandi.vísir/bára
Þjálfarinn

Rúnar Sigtryggsson er á sínu öðru tímabili með Stjörnuna. Hann er afar reyndur þjálfari og auk Stjörnunnar hefur hann stýrt Þór og Akureyri og Eisenach, Aue og Balingen-Weilstetten í Þýskalandi.

Rúnar lék yfir 100 landsleiki og var í íslenska landsliðinu sem endaði í 4. sæti á EM 2002. Hann varð Íslandsmeistari með Val og Haukum og lék með spænska stórliðinu Ciudad Real þar sem hann vann Evrópukeppni bikarhafa.



Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: Stjarnan
Hvað segir sérfræðingurinn?„Það eru fróðlegir hlutir að gerast í Garðabænum. Það eru miklar mannabreytingar og sterkir leikmenn farnir og mjög öflugir leikmenn sem voru að bera liðið svolítið uppi í fyrra. Engu að síður eru mjög öflugir leikmenn komnir til baka,“ segir Guðlaugur Arnarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Stjörnuliðið.

„Þar eru við að tala um Tandra sem hefur litið mjög vel út í þeim leikjum sem ég hef séð og Ólaf Bjarka sem meiddist reyndar strax. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Rúnar mætir með liðið til leiks. Ég reikna með því að hann mæti með liðið í betra formi en í fyrra því hann gaf sér fram í nóvember í fyrra til að koma þeim í stand. Ég reikna með því að hann komi með þá í formi strax í byrjun móts. Spennandi tímar en svolítil spurningarmerki um hvernig þetta þróast hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.

Patrekur Jóhannesson fagnar síðasta stóra titli Stjörnunnar, bikarmeistaratitlinum 2007.vísir/anton brink
Hversu langt síðan að Stjarnan ...

... varð Íslandsmeistari: Aldrei

... varð deildarmeistari: Aldrei

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 20 ár (1999)

... varð bikarmeistari: 12 ár (2007)

... komst í bikarúrslit: 6 ár (2013)

... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019)

... komst í undanúrslit: Aldrei

... komst í lokaúrslit: Aldrei

... féll úr deildinni: 4 ár (2015)

... kom upp í deildina: 3 ár (2016)

Gengi Stjörnunnar í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  8. sæti í deildinni

2017-18  7. sæti í deildinni

2016-17  9. sæti í deildinni

2015-16  B-deild (1. sæti)

2014-15  9. sæti í deildinni

2013-14  B-deild (2. sæti)

2012-13  B-deild (2. sæti)

2011-12  B-deild (3. sæti)

Gengi  Stjörnunnar í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:

2018-19  Átta liða úrslit

2017-18  Átta liða úrslit

2016-17  Ekki í úrslitakeppni

2015-16  B-deild

2014-15  Ekki í úrslitakeppni

2013-14  B-deild

2012-13  B-deild

2011-12  B-deild

Hornamaðurinn lipri, Leó Snær Pétursson.vísir/bára
Að lokum

Ef Stjarnan ætlar að gera betur en í fyrra verður vörnin að vera betri og skila fleiri hraðaupphlaupum. Þrátt fyrir að vera með þriðju bestu markvörsluna fengu aðeins tvö lið á sig fleiri mörk en Stjarnan á síðasta tímabili.

Tandri ætti að styrkja varnarleikinn og Stjarnan er með tvo af bestu varnarmönnum deildarinnar í honum og Bjarka Má Gunnarssyni. En Garðbæingar geta ekki treyst á að markvarslan verði jafn góð og í fyrra. Langt er síðan Brynjar Darri spilaði og Stephen hefur ekki verið góður í nokkur ár.

Stjarnan getur líka bætt sóknarleikinn og þarf að nýta færin mun betur í fyrra. Stjörnumenn voru með næstslökustu skotnýtinguna í deildinni á síðasta tímabili. Ólafur Bjarki var besti leikmaður deildarinnar síðast þegar hann lék hér á landi en hefur verið mikið meiddur undanfarin ár og missir af fyrstu leikjum tímabilsins vegna puttabrots. Þá má Stjarnan ekki við því Ari Magnús Þorgeirsson missi af jafn mörgum leikjum og í fyrra.

Fyrir síðasta tímabil spáði Rúnar því að Stjörnuliðið yrði ekki almennilega tilbúið fyrr en í nóvember. Hann reyndist sannspár og fyrsti sigurinn kom ekki fyrr en í 5. umferð. Stjörnumenn ættu að vera í betra formi en fyrir ári síðan og þurfa að byrja betur ef þeir ætla að ógna liðunum sem er spáð að endi fyrir ofan þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×