Meistari Hilarion líkamnast í Snorra Ásmundssyni listamanni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. september 2019 11:00 Snorri undirbýr sig andlega fyrir stórviðburðinn. Fréttablaðið/Ernir
Snorri Ásmundsson býður til hugleiðslustundar í Egilshöll um helgina. Þar mun meistari Hilarion, heilari og prestur í musteri sannleikans, taka á móti gestum og leiða þá inn í víddir hugans. Jafnframt verður stofnfundur nýrrar jógahreyfingar sem nefnist Sana Ba Lana. „Það sem er að fara að gerast er mjög spennandi, ekki síst fyrir mig og meistara Hilarion. Hann var bara síðast í Páli postula en hefur annars lítið líkamnast eins og hann er að fara að gera núna í mér. Þetta er því stór viðburður,“ segir Snorri sem þekktur er fyrir að teygja sig út fyrir hefðbundið rými listarinnar. Snorri lýsir kynnum sínum og meistara Hilarion svo: „Mamma fékk mynd frá afa sem hékk alltaf uppi á kontór hjá honum. Hún var af manni. Henni fannst þetta hommaleg mynd, vissi ekkert um hana og tók því vel þegar ég spurði hvort ég mætti eiga hana. Ég hengdi myndina upp á vinnustofunni hjá mér og daginn eftir kom vinkona mín sem er bókmenntafræðingur í heimsókn. Hún gapti þegar hún sá myndina, sagðist hafa verið að horfa á hana í bók kvöldið áður. Vinkonan ljósritaði fyrir mig kaflann, þá kom í ljós að myndin er af meistara Hilarion sem var dýrlingur í musteri sannleikans á Atlantis. Í bók minni Beauty Swift Generation Revolution er frásögn af heimsókn minni, ásamt vinum, inn í alheimsvitund þar sem Master Hilarion tók á móti okkur. Nokkrum árum seinna kviknaði í vinnustofunni, ég vaknaði klukkan fjögur að næturlagi, eins og í draumi og allt var orðið fullt af reyk. Þá hafði meistari Hilarion vakið mig, það kom í blöðunum á sínum tíma, fyrirsögnin var Bjargað af engli.“ Snorri kveðst tengja æ betur við meistara Hilarion. „Ég hef áttað mig á því að í gegnum allt sem ég hef verið að gera í lífinu hef ég verið að undirbúa mig undir komu hans og að lána honum líkama minn. Það er það sem mun gerast í Egilshöll í dag, auk þess sem ný tegund af jóga verður kynnt, hún heitir Sana Ba Lana og er skyld Kundalini jóga og öðrum aðferðum, en mjög einföld þannig að allir geta tekið þátt.“ Viðburðurinn er hluti af sýningu Listasafns Reykjavíkur, Haustlaukar – Ný myndlist í almannarými, sem stendur yfir utan safnhúsanna í september.
Myndlist Mest lesið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Menning Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira