Sport

Við suðumark innan vallar sem utan

Benedikt Bóas skrifar
Það er ekkert grín að hjóla upp Alpana, hvað þá þegar hitinn er orðinn svo mikill að flestum þykir nóg um. Hér er Julian Alaphilippe í gulu treyjunni sem sýnir þann sem er fyrstur í heildarkeppninni.
Það er ekkert grín að hjóla upp Alpana, hvað þá þegar hitinn er orðinn svo mikill að flestum þykir nóg um. Hér er Julian Alaphilippe í gulu treyjunni sem sýnir þann sem er fyrstur í heildarkeppninni. AP/Christophe Ena
Tour de France hefur nú hafið klifur sitt upp Alpana. Til að gera hlutina enn verri er hitabylgja að ganga yfir landið svo hjólað var upp í móti í 30 stiga hita. Keppnin hefur ekki verið tíðindalaus og tveir hafa verið reknir heim fyrir slagsmál í brautinni.

Þegar  14  kílómetrar  voru  eftir  af  17.  dagleið  Tour  de  France  lenti  þeim  Luke  Rowe  frá  Wales  og  Tony  Martin  frá  Þýskalandi saman á brautinni. Rowe var næstum keyrður út af brautinni af Martin og var ekki sáttur. Hjólaði á eftir honum, náði í skottið á honum og ýtti við og lét nokkur vel valin orð fylgja. UCI, Alþjóða hjólreiðasambandinu, og forráðamönnum Tour de France var ekki skemmt og hentu báðum keppendum úr keppni.

Rowe talaði við blaðamenn eftir að hann steig út úr bíl UCI og sagðist vera niðurbrotinn enda hefði þetta verið  lítið  brot.  „Mér  f innst  þetta  ósanngjarnt.  Ég  var  í  klukkutíma  þarna inni að skoða myndbönd af atvikinu  og  barðist  ekkert  aðeins  fyrir mig heldur líka fyrir hann. En því miður hafði ég ekki erindi sem erfiði,“ sagði sá velski.

Matteo Trentin kælir sig niður eftir sigur á sautjándu sérleiðinni.AP/Thibault Camus
Rowe hjólar fyrir Team Ineos og leikur lykilhlutverk í því að aðstoða Geraint Thomas í því að verja titil-inn frá því í fyrra. Þetta er því mikið högg fyrir ríkasta hjólreiðalið heims en  Ineos  er  í  eigu  Íslandsvinarins  Jims Ratcliffe. Liðið hét áður Team Sky en er nú í eigu Ratcliffes sem hefur styrkt stöðu þess sem eins af stórveldum hjólreiðanna.

Martin  var  sömuleiðis  niðurbrotinn og fannst refsingin heldur hörð.  „Mér  finnst  auðvitað  hrika-legt  að  skilja  liðið  eftir  á  þessum  stað.  Við  erum  að  berjast  við  að  koma  manni  á  pall  og  mér  f innst  þetta hörð refsing en það þýðir víst ekki að deila við dómarann,“ sagði hann en Martin hjólar fyrir Team Jumbo-Visna.

Liðin gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem skoðað er að áfrýja niðurstöðunni.  „Þetta  hafði  ekki  áhrif á nokkurn annan keppanda og hafði ekki áhrif á nokkurt annað lið. Þeir hjóluðu í mark og tókust í hendur  á  eftir.  Það  voru  engin  illindi  í  þessu enda bera þeir mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Að keppni þeirra skuli enda svona finnst okkur óréttlæti,“ sagði í yfirlýsingunni.

Flestir aðrir keppendur voru sammála um að refsingin væri heldur hörð.  Amund  Grøndahl  Jansen,  sem er samherji Martins hjá Jumbo-Visna,  sagði  við  fréttamenn  að  þarna væru samankomnir 180 vitleysingar sem væru að hjóla rétt við hver annan í hartnær þrjár vikur.

„Auðvitað gerist eitthvað á leiðinni og í þessum hita er það eðlilegt að bregðast við þegar eitthvað svona gerist. Það er mannlegt að gera mistök  og  ég  tel  að  það  sé  vitleysa  að  senda menn heim geri menn ein lítil mistök,“ sagði hann. Ben King, sem hjólar fyrir Dimension Data, tók í sama streng sem og Roger Kluge sem hjólar fyrir Lotto-Soudal.

Julian Alaphilippe.AP/Christophe Ena
Óbærilegur hiti

Þrír  dagar  eru  eftir  af  þessari  erfiðustu  hjólreiðakeppni  heims  og  hjóluðu kapparnir fyrsta legginn af Ölpunum  í  gær.  Heimamaðurinn  Julian Alaphilippe hefur leitt frá áttunda legg og stefnir að því að verða fyrsti heimamaðurinn til að vinna Tour de France síðan 1985. Hann er þó langt frá því að vera þekktastur fyrir hraða sinn upp brattann.

Hitinn   hefur   gert   hjólreiða-mönnum erfitt fyrir og hafa sumir brugðið á það ráð að hjóla í ísvestum. Á miðvikudag var keppt á tiltölulega auðveldu yfirborði en hitinn fór hæst í 39 stig og malbikið minnti helst á steikarpönnu. Jasper Styven tísti að hann hefði ekki haft orku  til  að  klára  legginn  en  hann  var  í  góðri  stöðu  skömmu  fyrir  lokaátökin. „Þetta getur ekki verið heilsusamlegt. Þegar hitinn verður svona  of boðslegur  þarf  kannski  að grípa eitthvað í taumana,“ sagði Steven Kruijswijk. Vissulega er hitinn minni uppi í Ölpunum en þegar lagt var af stað í gær var hitinn 10 gráðum hærri en venjulega.

Aðeins  45  mínútum  áður  en  keppnin  hófst  í  gær  birtist  lyfja-eftirlitið frá UCI og tók lið Jumbo-Visna í lyfjapróf en hjólreiðar hafa verið litaðar af svörtum sauðum í gegnum tíðina. Steven Kruijswijk, Laurens De Plus og George Bennett fóru í blóðprufu til að athuga hvort maðkur væri í mysunni. Svo reyndist ekki vera og voru þeir félagar mættir  á  ráslínuna  þegar  hjólað  var af stað. De Plus spaugaði á rás-línunni með að hann fagnaði lyfjaeftirlitinu. „Ég er enn með plásturinn  og  þetta  er  smá  óþægilegt  en  við  viljum  að  íþróttin  sé  hrein  og  ég vildi frekar gera þetta en hjóla á móti mönnum sem ég vissi að væru að taka inn eitthvað ólöglegt. Þeir birtast óvænt sem er gott, því ég vil ekki hjóla gegn fólki sem er að taka inn eitthvað ólöglegt.“

Alls eru hjólaðir 3.480 kílómetrar í  þessari  keppni  en  hún  endar  á  sunnudag á Champs-Élysées. Í gær voru  hjólaðir  208  kílómetrar  frá  Embrun til Valloire. Nairo Quint-ana  frá  Kólumbíu  kom  fyrstur  í  mark  en  heimamaðurinn  Ala-philippe kom 23. í mark en heldur hinni frægu gulu treyju sem fremsti maður hjólar í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×