Eitt mark dugði Kanada til sigurs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kadeisha Buchanan fagnar marki sínu gegn Kamerún.
Kadeisha Buchanan fagnar marki sínu gegn Kamerún. vísir/getty
Kanada vann 1-0 sigur á Kamerún í E-riðli heimsmeistaramóts kvenna í Frakklandi í kvöld. Leikið var í Montpellier.

Varnarmaðurinn Kadeisha Buchanan skoraði eina mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu Janine Beckie í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Buchanan, sem var valinn besti ungi leikmaðurinn á HM 2015, leikur með Evrópumeisturum Lyon.

Christine Sinclair, fyrirliði Kanada, er á sínu fimmta heimsmeistaramóti. Hún hefur skorað 181 mark fyrir kanadíska landsliðið og vantar aðeins fjögur mörk til að verða markahæsti landsliðsmaður sögunnar, bæði hjá konum og körlum. Sinclair var nálægt því að skora undir lok leiksins en Claudine Meffometou bjargaði á línu.

Meffometou komst næst því að skora fyrir kamerúnska liðið sem þykir ekki líklegt til afreka á HM.

Kanada var miklu meira með boltann í leiknum og Nichelle Prince átti skot í stöng í stöðunni 0-0. Kanada hefur ekki skorað meira en eitt mark í síðustu níu leikjum sínum á HM.

Á morgun mætast Nýja-Sjáland og Evrópumeistarar Hollands í E-riðli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira