Lífið

Spurning hvort keto henti Jóni og Gunnu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur.
Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur. Vísir/Vilhelm
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari sem búsett er í Danmörku þar sem hún starfar sem sálfræðingur. Ragga einbeitir sér að því að hjálpa fólki að snúa við blaðinu og breyta jafnvel um lífstíl. Þetta getur átt við um að létta sig, hætta að reykja eða bæta samband sitt við mat. Ragnhildur er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Í þættinum fer Ragga yfir allt á milli himins og jarðar þegar kemur að heilsu og barst talið að þeim ótal mörgu kúrum sem fólk virðist heillast af. Kúrar á borð við keto og 16/8.

„Það sem svona megrunarkúrar og matarplön gera er að þau veita okkur ákveðin ramma og það er það sem fólk sækist í,“ segir Ragnhildur.

„Fólk er orðið rosalega ruglað í því hvað má ég borða og hvað má ég ekki borða. Ef ég fæ eitthvað plan sem einhver gúrú út í heimi er búinn að gera og fylgi því þá fæ ég svona geislabaugsáhrif og þar líður mér vel innan rammans. Það sem gerist er að við förum að streitast á móti, það sem við köllum á sálfræðimáli unglinginn. Þú ferð að segja við þig, æji þú mátt þetta og þá förum við ósjálfrátt að sveigja út frá reglunum. Ef við erum að fylgja keto og svo er einhver sem á afmæli og það er kaka á borðinu og fokk it kemur í heimsókn, við þekkjum hann. Þá ert þú ekki lengur að fylgja ketoplaninu. Þú ert búinn að fá þér kolvetni og sykur og allt saman og þá er allt ónýtt.“

Sálrænt mjög erfitt

Ragga segir að þetta sé hættan þegar maður er að fylgja fyrirfram ákveðnu plani sem einhver annar er búinn að semja.

„Þá kemur upp hugsunin að ég er hvort sem er að svindla og beygja reglurnar og þá get ég hvort sem er haldið áfram. Það er svona vandinn sem við sálfræðingar sjáum við svona megrunarkúra. Listinn yfir þau matvæli sem þú átt að forðast er langur og þetta verður svolítið snauð tilvera og erfið félagslega. Þú þarft oft að taka þinn eigin mat með þér og fólk fer jafnvel að sleppa því að mæta í matarboð. Að því leyti eru megrunarkúrar mjög sálrænt erfiðir fyrir fólk en þeir geta hjálpað mörgum. Keto hefur verið skoðað að mörgum í tengslum við flogaveiki og sykursýki en það er svona spurning hvort það henti endilega meðal Jóni og Gunnu.“

Í þættinum ræðir Ragnhildur einnig um það af hverju hún fór að einbeita sér að heilsubransanum, pistla hennar sem hafa vakið mikla athygli, vandamál heimsbyggðarinnar þegar kemur að kyrrsetu, að maður geti aldrei gert mistök og bara lært og þau námskeið sem hún heldur úti.


Tengdar fréttir

Drakk frá mér alla ábyrgð

Ingólfur Þórarinsson hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins síðastliðinn fimmtán ár. Ingó er gestur vikunnar í Einkalífinu en í þættinum fer söngvarinn um víðan völl og kemur inn á það að hann hafi ekki drukkið áfengi í sjö mánuði.

„Hefði ekki viljað hafa neinn annan með mér í þessu“

Síðastliðinn áratug hefur Sólmundur Hólm Sólmundarson starfað sem skemmtikraftur og heillað þjóðina upp úr skónum. Árið 2017 greindist Sóli með eitlakrabbamein og við tók heljarinnar barátta við meinið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×