Innlent

Velferðarnefnd vill auka vægi sjúkraflutningamanna utan spítala

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Velferðarnefnd bendir á  að mikilvægt sé að hafa í huga að rétt fyrstu viðbrögð og sú meðferð sem veitt er á milli slysstaðar og heilbrigðisstofnunar geta skipt sköpum um líf og heilsu manna.
Velferðarnefnd bendir á að mikilvægt sé að hafa í huga að rétt fyrstu viðbrögð og sú meðferð sem veitt er á milli slysstaðar og heilbrigðisstofnunar geta skipt sköpum um líf og heilsu manna. Vísir/Vilhelm
Velferðarnefnd Alþingis mun á næstu dögum leggja fram þingályktunartillögu þar sem lagt er til að mótuð verði stefna um um bráðaþjónustu utan spítala.

Lagt er til að Alþingi álykti um að fela heilbrigðisráðherra að móta heildstæða opinbera stefnu um rekstur og skipulag bráðaþjónustu utan spítala. Markmiðið er að formfesta samstarf þeirra sem sinna þjónustunni, skilgreina með skýrari hætti ábyrgð og verkaskiptingu innan hennar og efla menntun, endurmenntun og starfsþjálfun þeirra sem starfa við sjúkra- og neyðarflutninga og veita bráðaþjónustu á vettvangi slysa, veikinda eða í öðrum neyðartilvikum.

Vilhjálmur Árnasson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, mun flytja þingsályktunartillöguna á Alþingi fyrir hönd Velferðarnefndar sem hóf frumkvæðisskoðun á málaflokkum en nefndin leggur þessar breytingar til sem gerðar eru til þess að styrkja þjónustuna. Þverpólitísk samstaðar er innan Velferðarnefndarinnar um málið.

Við vinnslu tillögunnar fékk nefndin á fund til sín fulltrúa frá Velferðarráðuneytinu, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Sjúkraflutningamenn sinna starfi í Þjóðgarðinum á Þingvöllum á sérstakri bifreið. Sjúkrabíll er svo fengin til aðstoðar í útköllum.Vísir/JóhannK

Þjónusta utan spítala við slasaða og veika orðin stærri þáttur

Í tillögunni segir að vægi sjúkra- og neyðarflutninga innan heilbrigðiskerfisins hafi aukist töluvert síðustu ár. Ýmsir þættir hafa valdið því að tíðni útkalla og þær kröfur sem gerðar eru til þjónustunnar hafa aukist.

Breytt aldurssamsetning þjóðarinnar, fjölgun ferðamanna, fækkun fæðingarstaða og lokanir skurðstofa hafa átt stóran þátt í þeirri þróun.

„Samhliða breyttum aðstæðum hefur tækninni fleygt fram og möguleikar sjúkraflutningamanna og bráðatækna til þess að bjarga mannslífum eða koma í veg fyrir varanlegt tjón, svo sem örorku, vegna alvarlegra slysa meiri en áður hefur verið. Mikilvægt er að hafa í huga að rétt fyrstu viðbrögð og sú meðferð sem veitt er á milli slysstaðar og heilbrigðisstofnunar geta skipt sköpum um líf og heilsu manna. Öflug bráðaþjónusta utan spítala er því nauðsynlegur hlekkur í öflugu heilbrigðiskerfi,“ segir jafnframt í þingsályktunartillögunni.

Velferðarnefnd vill efla störf sjúkra- og neyðarflutningamanna utan spítalaVísir/Vilhelm

Skortur á yfirsýn og framtíðarstefnu

Ástæða þess að Velferðarnefnd tók málið til skoðunar eru athuganir á vegum stjórnvalda og sérfræðinga innan heilbrigðisþjónustunnar á því hvernig best sé að bregðast við auknu mikilvægi þjónustunnar í samræmi við framangreint markmið en málið hefur verið til skoðunar undanfarið ár.

Í tillögunni segir að í dag vanti yfirsýn og framtíðarstefnu í þjónustunni og verkaskiptin og dreifing ábyrgðar hefur verið óljós.

Við skoðun nefndarinnar kom meðal annars fram að starf yfirlæknis utanspítalaþjónustu væri aðeins 50% starf í dag, og að það dygði ekki til þess að sinna því uppbyggingarstarfi og gæðaeftirliti sem málaflokkurinn þarf.Vísir/Vilhelm

50% starf yfirlæknis utanspítalaþjónustu í dag dugar ekki

Við skoðun nefndarinnar kom meðal annars fram að starf yfirlæknis utanspítalaþjónustu væri aðeins 50% starf í dag, og að það dygði ekki til þess að sinna því uppbyggingarstarfi og gæðaeftirliti sem málaflokkurinn þarf.

Þá þarf að skilgreina betur hlutverk fagráðs sjúkraflutninga og koma á fót miðstöð eða samstarfsvettvang sérfræðinga í málaflokknum svo tryggt verði samráðvettvangur um skipulag þjónustunnar. Þá er vilji til þess að bæta menntun sjúkraflutningamanna enn betur.

 

Vilji til að stofna utanspítalaþjónustu

Með stofnun miðstöðvar utanspítalaþjónustu væri hægt að tryggja að vinnuferlar sjúkraflutningamanna, námskrá sjúkraflutningaskólans, þjónustuviðmið, endurmenntun og gæðaeftirlit með þjónustunni væri samræmt. Þannig mundi skapast betri yfirsýn yfir þá menntun og starfsþjálfun þeirra sem starfa við þjónustuna.

Bent er á þann árangur sem náðst hefur með stofnun Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar og Mennta- og þróunarseturs lögreglunnar sem hefur það lögbundna hlutverk að annast starfsnám nema í lögreglufræðum, hafa umsjón með símenntun lögreglumanna auk annarra verkefna er tengjast starfsemi lögreglunnar. 

 

 

 

 

Velferðarnefnd að störfum. Mynd úr safniVísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Enn bið eftir nýjum sjúkrabílum

Ástandið óásættanlegt að mati umsjónarmanna sjúkrabíla. Sjúkrabílaflotinn eldist hratt og útboði vegna kaupa á nýjum bílum er ítrekað frestað.

Segir sjúkraþyrlu geta skipt sköpum í sambærilegum slysum

Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni segir ekki inni í myndinni að brjóta reglur um hvíldartíma þyrluáhafna þótt upp komi neyðartilfelli. Ákjósanlegt væri þó að hafa tvær áhafnir til taks meirihluta ársins. Sjúkraflutningamenn kalla eftir sérhæfðri sjúkraþyrlu á Suður- og Vesturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×