Innlent

Iðn, verk og tækninám slær í gegn á Suðurlandi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ingunn Jónsdóttir, sem var verkefnisstjóri Starfamessunnar 2019 en þetta var í þriðja skipti, sem hún er haldin.
Ingunn Jónsdóttir, sem var verkefnisstjóri Starfamessunnar 2019 en þetta var í þriðja skipti, sem hún er haldin. Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Iðn, verk og tækninám hefur slegið í gegn í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi eftir að nýtt verknámshús var tekið í notkun við húsið.

Starfamessa var haldin í húsinu í vikunni þar sem um yfir 700 nemendur 9. og 10. bekkja grunnskólanna á Suðurlandi og kynntu sér nám og störf í iðn, verk- og tæknigreinum meðal sunnlenskra fyrirtækja og menntastofnana. 

Starfamessa var haldin miðvikudaginn 10. apríl í verknámshúsinu Hamri sem er hluti af Fjölbrautaskóla Suðurlands á vegum Atorku, sem er samtök atvinnurekenda á Suðurlandi, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Sóknaráætlun Suðurlands. Starfamessan var nú haldin í þriðja skipti með góðum árangri. Nýja verknámshúsið er með fyrirmyndaraðstöðu fyrir verknámsgreinar og vel tækjum búið. Ingunn Jónsdóttir var verkefnisstjóri starfamessunnar.

„Starfamessa gengur út á það að kynna fyrir sunnlenskum ungmennum nám í iðn, verk og tæknigreinum, bæði námið og svo fyrirtækin, sem þau koma til með að starfa hjá eftir námið eru á staðnum til að sýna þeim hvað er í rauninni mikið í boði á Suðurlandi“, segir Ingunn Jónsdóttir, sem var verkefnisstjóri Starfamessunnar.

Nemendur voru mjög áhugasamir um þær kynningar sem fyrirtæki buðu upp á þegar Starfamessan fór fram í vikunni.Magnús Hlynur
„Það er gríðarlega mikilvægt að vera með svona kynningu og við sjáum það bara í tölum í fjölda umsókna í skólann, sem hafa rokið upp“, bætir Ingunn við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×