Japanir stefna að því að viðurkenna ainufólkið Atli Ísleifsson skrifar 15. febrúar 2019 08:40 Ainufólk í bænum Shiraoi á Hokkaido árið 2017. Getty
Eftir langa sögu mismununar og ofsókna stefna Japanir nú að því að viðurkenna þjóðarbrotið ainu. Ríkisstjórnin í Japan hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér að ainufólkið fái stöðu frumbryggja í Japan. Ainufólkið býr flest á norðurhluta eyjunnar Hokkaido. Ainufólk hefur lengi neyðst til að skipta um nafn og verið meinað að veiða dýr á sinn hefðbundna máta. Undir lok nítjándu aldar bönnuðu japönsk stjórnvöld ainu að tala tungumál sitt og fyrir vikið lifir tungumál fólksins einungis meðal mjög fámenns hóps. Frumvarp japönsku ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að fjárhagslegur og félagslegur stuðningur við ainufólkið verði aukinn, en nokkur munur er á menntun og meðaltekjum ainu og annarra Japana. „Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að tryggja jafnrétti samkvæmt lögum,“ segir Mikiko Maruko, sem fer fyrir réttindabaráttu ainu í höfuðborginni Tókýó. Ekki er ljóst hvað margir tilheyra ainu, en rannsókn frá árinu 2017 gerir ráð fyrir að þeir telji um 12.300. Raunverulegur fjöldi kann að vera hærri þar sem margir úr hópi þeirra hafa falið uppruna sinn af ótta við ofsóknir.
Japan Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira