Ljótur sigur hjá bandaríska fótboltalandsliðinu í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2019 08:15 Weston Mckennie og Christian Pulisic fagna sigurmarkinu í nótt. Getty/Patrick Smith
Bandaríska fótboltalandsliðið rétt marði 1-0 sigur á smáríkinu Curacao í átta liða úrslitum Gullbikarsins í nótt. Bandaríkin er því í undanúrslitum ásamt Mexíkó, Haítí og Jamaíku. Bandaríska landsliðið fékk harða gagnrýni fyrir frammistöðu sína í nótt en bandarísku blaðamennirnir voru allt annað en hrifnir af leik liðsins. Christian Pulisic, nýr leikmaður Chelsea, var með fyrirliðaband bandaríska liðsins og hann var tvisvar nálægt því að skora á upphafsmínútunum. Pulisic lagði síðan upp mark fyrir Weston McKennie á 25. mínútu leiksins. Það reyndist vera eina mark leiksins. Zack Steffen, markvörður bandaríska liðsins, þurfti síðan að taka á sínum stóra sínum til að koma í veg fyrir jöfnunarmark. Zack Steffen hélt hreinu í fjórða leiknum í röð í keppninni en þessi 24 ára markvörður spilar með Columbus Crew í bandarísku deildinni. Bandaríkin mæta Jamaíka í undanúrslitum en í hinum leiknum mætast Mexíkó og Haítí. Gullbikarinn er keppni þjóða í Norður- og Mið-Ameríku og er sams konar keppni og Evrópu- og Suður-Ameríkukeppni landsliða. Curacao skildi eftir El Salvador og Hondúras í sínum riðli en liðið tryggði sig áfram með því að ná 1-1 jafntefli við Jamaíka í lokaleik riðlakeppninnar. Curacao er í 79. sæti heimslista FIFA eða 49 sætum neðar en Bandaríkin. Curacao er eyríki í Karíbahafi, undan strönd Venesúela. Þetta var hluti af hollensku Vestur-Indíum en fékk sjálfsstjórn árið 2010 þegar hollensku Antillaeyjar voru leystar upp.
Fótbolti Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Fleiri fréttir Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Sjá meira