Mark Gareth Bale eftir átta mínútur reyndist eina mark Real Madrid í 1-0 sigri á SD Huesca í spænsku úrvalsdeildinni í dag.
Alvaro Odriozola kom boltanum á Bale sem kom boltanum yfir línuna en markið afar mikilvægt sem tryggði Real 1-0 sigurinn.
Real hefur verið í vandræðum í deildinni á tímabilinu en eftir sigurinn er liðið komið i fjórða sætið, fimm stigum á eftir toppliði Barcelona.
Huesca er hins vegar í öllum meiri vandræðum á botni deildarinnar með sjö stig, sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni á þessum tímapunkti.
