Mannshjarta í reiðileysi sneri vélinni við Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. desember 2018 07:29 Hjartað flaug undir merkjum flugfélagsins Southwest Airlines. Getty/Bruce Bennett
Flugvél bandaríska flugfélagsins Southwest Airlines var snúið við á sunnudag eftir að mannshjarta, sem gleymst hafði að ferja úr vélinni á flugvellinum í Seattle, fannst um borð. Fyrst var greint frá málinu í gær en samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu hafði hjartanu verið flogið frá Kaliforníu til Seattle, þar sem átti að flytja það á spítala í borginni. Hjartað var hins vegar aldrei ferjað úr flugvélinni og var enn um borð þegar flugvélin tók á loft í næsta flug, til borgarinnar Dallas í Texas. Vélinni var flogið í um þrjár klukkustundir áður en það uppgötvaðist að hjartað væri um borð. Flugstjórinn neyddist því til að snúa við til Seattle og samkvæmt frétt BBC var farþegum nokkuð brugðið þegar tilkynnt var um ástæðu viðsnúningsins. Bandaríska dagblaðið The Seattle Times greinir frá því að hjartað hafi komist heilu og höldnu á sjúkrahúsið innan hins lífvænlega tímaramma. Líffærið var ekki ætlað sérstökum sjúklingi til ígræðslu heldur átti að taka af því hjartaloku.
Bandaríkin Fréttir af flugi Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fleiri fréttir John Alford fannst látinn í fangelsi Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Sjá meira