Innlent

Bilun í spenni í Írafossvirkjun talin hafa valdið sprengingu

Sighvatur Jónsson skrifar
Áfram verður unnið að viðgerð á spenninum sem brann.
Áfram verður unnið að viðgerð á spenninum sem brann. Brunavarnir Árnessýslu
Bilun í mælispenni Írafossvirkjunar í nótt er talin hafa valdið sprengingu í spenninum sem varð til þess að eldur kom upp í honum.

Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út á fjórða tímanum og var talin hætta á ferðum vegna olíu í spenninnum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn eftir að búið var að jarðtengja spenninn.

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir enga truflun hafa orðið á raforkuframleiðslu vegna óhappsins.

Þrátt fyrir að skemmdir virðist ekki vera miklar er Ljósafosslína 1 enn óvirk og er rafmagn á Suðurlandi flutt eftir varaleið um Selfosslínu 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×