Erlent

Rannsaka ásakanir um kynferðisbrot á hendur Neil deGrasse Tyson

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Neil deGrasse Tyson.
Neil deGrasse Tyson. Getty/Craig Barritt
Stjarneðlisfræðingurinn og sjónvarpsmaðurinn Neil deGrasse Tyson sætir nú rannsókn vegna ásakana um kynferðisbrot á hendur honum.

Greint var frá ásökununum í grein á vefritinu Patheos á fimmtudag. Þar stíga fram tvær konur og saka Tyson um að hafa sýnt af sér ósæmilega hegðun í samskiptum við þær.

Önnur þeirra, dr. Katelyn N. Allers, eðlis- og stjörnufræðikennari við Bucknell-háskóla, segir Tyson hafa káfað á sér í veislu sem haldin var eftir ráðstefnu Bandaríska stjörnufræðisambandsins árið 2009. Hin konan heitir Ashley Watson og er fyrrverandi aðstoðarkona Tysons. Watson heldur því fram að hún hafi neyðst til að segja upp starfi sínu eftir að Tyson fór þess ítrekað á leit við hana að þau hæfu kynferðislegt samband.

Sjá einnig: Cosmos: A Spacetime Odyssey byrjuðu í gær

Tyson er stjórnandi sjónvarpsþáttaraðarinnar Cosmos, sem bar titilinn Alheimurinn þegar hún var sýnd á RÚV, og mun stýra framhaldsþáttaröð sem frumsýnd verður á bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox á næsta ári.

Í yfirlýsingu frá framleiðendum þáttanna segir að ásakanirnar á hendur Tyson verði rannsakaðar og að brugðist verði við þeim á viðeigandi hátt að rannsókn lokinni.

Fox-sjónvarpsstöðin tekur í sama streng í yfirlýsingu. Þar segir að stöðin hefði nýlega fengið veður af ásökunum á hendur Tyson og að málið sé tekið alvarlega. Þá verði ásakanirnar rannsakaðar.

Fagnar óháðri rannsókn

Tyson tjáði sig um ásakanirnar á Facebook-síðu sinni í kvöld, bæði þær sem greint var frá á fimmtudag og ásakanir konu sem steig fram í fyrra. Tyson hafnaði því að hafa káfað á Allers árið 2009 en minntist þess að hún hefði beðið hann um að sitja fyrir með sér á mynd er þau hittust á ráðstefnunni. Þá kannaðist hann ekki við að hafa hagað sér ósæmilega í garð fyrrverandi aðstoðarkonu sinnar, en viðurkenndi þó að hún hefði tjáð sér að hann hefði farið yfir strikið.

„Ég er sá sem ásakanirnar eru bornar á, af hverju ætti nokkur maður að trúa því sem ég segi? [...] Þar komum við að gildi óháðrar rannsóknar sem Fox/NatGEO tilkynnti um að muni fara fram. Ég fagna því,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni, sem lesa má í heild hér.

Cosmos-þættirnir voru frumsýndir árið 2014 en í þeim reynir Tyson að leita skýringa á uppruna mannsins með aðstoð vísindanna. Þetta er jafnframt ekki í fyrsta sinn sem Tyson er sakaður um kynferðisbrot eins og áður segir. Í fyrra sakaði tónlistarkonan Tchiya Amet Tyson um að hafa nauðgað sér þegar þau voru saman í háskólanámi.

Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum Tyson sem birt voru seint í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×