2.000 dagar frá síðasta deildarsigri Njarðvíkur gegn Keflavík í Ljónagryfjunni Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. október 2018 15:30 Logi Gunnarsson þyrstir væntanlega í sigur gegn Keflavík. vísir
Fyrstu umferð Domino´s-deildar karla í körfubolta lýkur í kvöld með tveimur leikjum en síðasti leikurinn er algjör sprengja. Stórveldin og erkifjendurnir Njarðvík og Keflavík mætast í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 20.15. Bæði lið styrktu sig vel á leikmannamarkaðnum í sumar en Njarðvíkingar fengu heim Bandaríkjamanninn Jeb Ivey sem leiddi liðið til síðasta Íslandsmeistaratitils félagsins árið 2006. Þá er það komið með tvo öfluga Króata. Keflavík átti stærstu félagaskipti sumarsins þegar að Bandaríkjamaðurinn og tvöfaldi Íslandsmeistarinn Michael Craion datt í hús skömmu fyrir mót en miðherjinn magnaði var óstöðvandi í Domino´s-deildinni áður en að hann fór til Frakklands að spila. Keflavík hefur gengið svakalega vel í Ljónagryfjunni í Domino´s-deildinni, alltof vel líklega að mati Njarðvíkinga sem eru ekki búnir að leggja erkifjendur sína á heimavelli í tæp fimm ár. Keflavík er búið að vinna fjóra deildarleiki í röð í Ljónagryfjunni, síðast í byrjun desember í fyrra þegar að Keflavík hafði fjögurra stiga sigur. Njarðvík vann síðast Keflavík í Ljónagryfjunni 14. mars 2013 en alls eru 2.031 dagur síðan að Njarðvík vann nágranna sína á heimavelli. Þeir vilja vafalítið breyta því í kvöld. Þessi stórleikur er sá fyrsti á nýjum föstudagstíma klukkan 20.15 en nú verða alltaf tveir leikir í beinni á föstudögum. Sá fyrri í kvöld er viðureign Stjörnunnar og ÍR. Domino´s-Körfuboltakvöld gerir svo upp alla umferðina klukkan 22.10.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira