Lífið

Núverandi og fyrrverandi kærustur fóru í Sannleikann eða kontór

Stefán Árni Pálsson skrifar
Matröð margra verður að veruleika.
Matröð margra verður að veruleika.
„Heldur þú að getnaðarlimur kærasta míns sé stærri eða minni en meðalstærð?“

Svona hefst myndband frá YouTube-síðunni CUT þar sem tvær konur fara í leikinn fræga Sannleikann eða kontór.

Báðar eiga þær það sameiginlegt að hafa verið í ástarsambandi við sama manninn. Önnur þeirra er núverandi kærasta mannsins og hin er fyrrverandi.

Ekki eitthvað sem margir karlmenn vilja sjá. Núverandi og fyrrverandi í þessum leik. Konurnar heita Saveara og Emily og heitir karlmaðurinn Joey.

Sannleikurinn eða kontór gengur út á það að varpað er fram spurningu og þú verður að velja milli tveggja möguleika. Að svara spurningunni eða taka áskorun.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst hjá þessum tveimur konum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×