ISIS-liði komst inn í Bandaríkin dulbúinn sem flóttamaður Vésteinn Örn Pétursson skrifar 18. ágúst 2018 20:35 Omar Abdulsattar Ameen er meðal annars gefið að sök að hafa myrt lögreglumann í Írak. Vísir/AP
Írakskur maður sem sakaður er um að hafa verið vígamaður Íslamska ríkisins komst á bandaríska grundu dulbúinn sem flóttamaður. Maðurinn, sem er 45 ára, heitir Omar Abdulsattar Ameen, og hafði búið í Sacramento í Kaliforníu síðan í nóvember 2014. Hann hafði fengið landvistarleyfi í Bandaríkjunum á grundvelli þess að hann væri flóttamaður á flótta undan hryðjuverkaógn. Ameen flúði Írak til Tyrklands árið 2012, hvar hann sótti um að komast til Bandaríkjanna sem flóttamaður. Umsókn hans var samþykkt í júní 2014. Samkvæmt saksóknurum í máli Ameens hélt hann í sama mánuði aftur til Írak og á að hafa myrt þar lögregluþjón í bænum Rawah sem þá var nýkominn undir stjórn Íslamska ríkisins. Fimm mánuðum síðar er Ameen sagður hafa haldið til Bandaríkjanna og sest þar að sem flóttamaður. Ameen var handtekinn á grundvelli handtökuskipunar sem var gefin út af íröskum dómstóli í Bagdad í maí. Meðal þess sem Ameen er gefið að sök er sprengjugerð fyrir ISIS, flutningur vígamanna, öflun fjármuna og mannrán. Réttarhöld yfir Ameen hefjast á mánudaginn
Erlent Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Sjá meira