Lífið

Nicole Kidman fangaði risa könguló eins og ekkert væri eðlilegra

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nicole Kidman kallar ekki allt ömmu sína.
Nicole Kidman kallar ekki allt ömmu sína. vísir/getty/instagram
Leikkonan Nicole Kidman er greinilega harðari en flestir en hún sýnir frá því á Instagram þegar hún þurfti að taka upp risa könguló heima hjá sér.

„Heimilisgestur sem ég náði og sleppti,“ segir Kidman og bætir við að köngulóin sé heil á húfi.

Um var ræða vægast sagt stóra könguló og fór leikkonan létt með verkefnið.

Hér að neðan má sjá hvernig þetta allt saman gekk fyrir sig.  

 
House guest! Catch and release…spider released unharmed and healthy Happy Sunday

A post shared by Nicole Kidman (@nicolekidman) on Jul 29, 2018 at 11:41am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×