Innlent

Segir fjármálaráðuneytið nota ljósmæðradeiluna til að hnykla vöðvana

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm
„Ég er farin að sjá hvað það þrengir að starfseminni og í hvað stefnir,“ segir Brynja Ragnarsdóttir fæðingarlæknir á Landspítalanum í samtali við Vísi. Hún er áhyggjufull yfir stöðunni á Landspítalanum vegna ljósmæðradeilunnar. Brynja var á vaktinni í nótt og hún hefur strax fundið fyrir breytingunni eftir að uppsagnir 12 ljósmæðra tóku gildi á sunnudag.

„Ég var í sérnámi í Bretlandi og þar var töluverð vöntun á ljósmæðrum. Þegar spítalar komu illa út hvað varðar óvenju mikla tíðni af slæmri útkomu hjá móður eða börnum tengt fæðingum, þá var það venjulega rauði þráðurinn í niðurstöðum að það væri vegna vöntunar á vel menntuðum og færum ljósmæðrum. Þannig að það eru alveg bein tengsl þarna á milli.“

Hingað til hefur verið vel mannað hér á landi en Brynja segir að þegar það breytist þá viti hún í hvað stefnir.

„Það stefnir öryggi verðandi mæðra og nýbura í hættu.“

Brynja Ragnarsdóttir.

Missa ljósmæður varanlega úr stéttinni

Brynja skrifaði pistil á Facebook í gær þar sem hún lýsti yfir áhyggjum sínum. Sérfræðilæknar Kvennadeildar LSH sendu svo í dag frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna málsins eins og fjallað var um hér á Vísi

„Þetta er alvöru mál og þetta er alvarlegra en verkfallsaðgerð að því leitinu til að þegar fólk segir upp starfinu sínu þá eru alls ekki allir sem koma til baka. Þannig að jafnvel þótt að þetta leysist og samið verði með viðunandi hætti við ljósmæður þá erum við örugglega búnar að missa einhverjar frá okkur. Það er ekki eins og það séu ljósmæður á hverju strái hérna, við menntum ekki nema tíu á ári og það eru mikið af ljósmæðrum sem eru að komast á aldri og störf sem þarf að fylla. Hvað þá þeirra sem að hrekjast burt út af launakjörum og álagi.“ segir Brynja.

„Staðan er alvarleg myndi ég segja og það verður að gerast eitthvað mjög fljótt, áður en að enn fleiri segja upp og hætta.“

Brynja segir að það hafi komið sér á óvart hversu lengi þessi deila hefur dregist.

„Maður átti ekki von á öðru en að þetta myndi leysast. Ljósmæður hafa mikinn stuðning frá verðandi mæðrum og bara almenningi. Það er alveg ótrúlegt hvað á að nota þær sem einhvers konar fordæmi, fyrir fjármálaráðuneytið til að hnykla vöðvana.“

Læknar á Kvennadeild Landspítalans hafa miklar áhyggjur af ástandinu.Vísir/Sigurjón Ólason

Heimaþjónustuljósmæður taka ekki endalaust við

Áhrifin eru strax komin fram og er byrjað að þrengja á starfseminni á Landspítalanum.

„Maður þakkar fyrir hverja vakt sem líður án atvika og allir fá þjónustu. En núna strax í nótt var mikið að gera og það fæddust sjö börn. Þau sem venjulega hefðu bara farið á sængurlegudeildina, foreldrarnir á börnin, sem núna þarf að leita úrræða fyrir.“

Hún bendir á að þessi aðgerðaráætlun Landspítalans til að bregðast við ástandinu, leysi ekki vandann.

„Það er ekki endalaust hægt að velta boltanum yfir til heimaþjónustuljósmæðra því núna er til dæmis hápunktur sumarleyfa hjá ljósmæðrum og þorra landsmanna. Þær sinna einnig öðrum störfum í dagvinnu þannig að þær taka ekki endalaust við. Neyðaráætlun Landspítalans getur ekki gengið upp nema í stuttan tíma.“

Brynja segir að í ljósi þess að enn fleiri ljósmæður hafi sagt upp þá stefni bara í versnandi ástand.

Heilbrigðisráðherra, yfirmenn á Landspítalanum og ef til vill Landlæknir koma fyrir velferðarnefnd Alþingis seinna í dag til að ræða þá alvarlegu stöðu sem komin er upp í kjaradeilu ljósmæðra.

Pistil Brynju má lesa hér að neðan:




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×