Keppendur í The Amazing Race dingluðu yfir Geitárgljúfri Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. janúar 2018 08:28 Keppendurnir voru eins og krækiber í helvíti er þeir fikruðu sig yfir gljúfrið. Skjáskot
Keppendur í þrítugustu þáttaröð The Amazing Race þurftu heldur betur að taka á honum stóra sínum þegar þeir þeyttust um Ísland siðastliðið haust.Eins og Vísir greindi frá á sínum tíma komu keppendur hingað til lands í upphafi október en þetta er í annað sinn sem þessi vinsæli kapphlaupsratleikur fer að hluta fram á Íslandi. Keppendur þurftu meðal annars að hlaupa um miðborgina og drekka lýsi á Ingólfstorgi. Þrátt fyrir að í fyrri frétt Vísis hafi mátt fá smjörþefinn af Íslandsdvölinni var fyrsta opinbera brotið úr þættinum frumsýnt á vefsíðu Entertainment Weekly í nótt. Það má sjá hér neðan.Leist ekkert á blikuna Í myndskeiðinu sjást keppendurnir fara á línu yfir Geitárgljúfur og næla sér í íslenska fánann. Ljóst er að þeim stóð þeim hreint ekki á sama enda héngu þeir í mikilli hæð. „Hæðir eru ekki minn tebolli, ekki frekar en að dingla svona í háloftunum en 29 þáttaraðir af The Amazing Race hafa verið hluti af fjölskyldu minni. Ég veit að börnin mín munu horfa á þetta. Þó svo að mig langi alls ekki að gera þetta þá geri ég það fyrir keppnina,“ segir meðal annars Cedric Ceballos þegar hann undirbýr sig fyrir svaðilförina. Fyrsti þáttur þrítugustu þáttaraðarinnar, sem meðal annars er tekinn upp á Íslandi, verður frumsýndur á sjónvarpsstöðinni CBS í kvöld.Keppendur í The Amazing Race hafa áður verið sendir til Íslands, nánar tiltekið í sjöttu þáttaröð sem sýnd var á Stöð 2 á árunum 2004 til 2005. Það að Íslandi hafi brugðið fyrir í þátttunum var sögð vera „ein mesta landkynning sögunnar.“ - hvorki meira né minna.
Tengdar fréttir Hollywood undrandi á nefnd um endurgreiðslu Stóra endurgreiðslumálið vindur enn upp á sig því ein stærsta landkynning á nýju ári féll á menningarhlutanum. Skoraði ekki nógu mörg stig þrátt fyrir að milljónatugir manna muni upplifa íslenskan veruleika í einni vinsælustu raunveruleikaþáttaröð heims. 19. desember 2017 11:30 Amazing Race aftur til Íslands Einn vinsælasti raunveruleikaþáttur heims var við tökur hér á landi í upphafi vikunnar. 5. október 2017 06:45 Mest lesið Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Er með gervigreindarþjálfara Lífið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Lífið Bergþór Másson selur slotið á ný Lífið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira
Hollywood undrandi á nefnd um endurgreiðslu Stóra endurgreiðslumálið vindur enn upp á sig því ein stærsta landkynning á nýju ári féll á menningarhlutanum. Skoraði ekki nógu mörg stig þrátt fyrir að milljónatugir manna muni upplifa íslenskan veruleika í einni vinsælustu raunveruleikaþáttaröð heims. 19. desember 2017 11:30
Amazing Race aftur til Íslands Einn vinsælasti raunveruleikaþáttur heims var við tökur hér á landi í upphafi vikunnar. 5. október 2017 06:45