Því hafnað að laun Svahildar hafi hækkað eins og komið hefur fram í fjölmiðlum
Í stjórn Hörpu sitja: Þórður Sverrisson stjórnarformaður, Arna Schram meðstjórnandi, Árni Geir Pálsson meðstjórnandi, Aðalheiður Magnúsdóttir meðstjórnandi og Vilhjálmur Egilsson meðstjórnandi. Samkvæmt yfirlýsingunni hefur stjórnin tekið sér stöðu með Svanhildi í deilum við þjónustufulltrúana ósáttu.

Þjónustufulltrúarnir kvaddir
Þar er sagt að Harpa sé gefandi og góður vinnustaður sem telur sig greiða samkeppnishæf laun.
„Það er mjög leitt að sjá á eftir góðu fólki sem starfað hefur í Hörpu sem þjónustufulltrúar til lengri eða skemmri tíma en telur sig ekki eiga samleið með fyrirtækinu áfram, en 17 uppsagnir hafa borist. Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir og munu aðilar fara í framhaldinu yfir næstu skref. Framkvæmdastjórn Hörpu virðir að sjálfsögðu þessa ákvörðun þeirra þjónustufulltrúa sem sagt hafa upp störfum og óskar þeim velfarnaðar.

Yfirlýsingin í heild sinni er svohljóðandi:
Yfirlýsing frá Hörpu
Vegna yfirlýsingar frá þjónustufulltrúum Hörpu sem sögðu upp störfum í gær
Þjónustufulltrúum Hörpu var boðið til fundar með forstjóra og fjármálastjóra, yfirmanni tæknisviðs og skipuleggjanda vakta þeirra í dagslok í gær og var tilefni fundarins umfjöllun fjölmiðla um óánægju þeirra vegna launamála. Fundurinn var yfirvegaður og hreinskiptinn. Farið var yfir allar staðreyndir varðandi laun forstjóra, ýmis mál er snerta störf þjónustufulltrúa rædd og hlustað á sjónarmið allra sem kusu að tjá sig.
Rekstur Hörpu hefur verið þungur um árabil og á síðasta ári gerðu eigendur og stjórn skýra kröfu um að ráðist yrði í aðgerðir til að bæta reksturinn og draga úr tapi. Síðastliðið sumar hófst endurskoðun á öllum rekstrarþáttum Hörpu og mun sú vinna standa yfir næstu misserin. Aðgerðir til að bæta rekstur birtast með ýmsum hætti á mismunandi starfssviðum Hörpu. 117 einstaklingar eru á launaskrá hjá Hörpu. Allir starfsmenn félagsins, þjónustufulltrúar sem aðrir, hafa lagt sitt lóð á vogarskálarnar með breytingum á vinnufyrirkomulagi og kjörum en einnig með auknu vinnuframlagi þar sem ekki er ráðið í laus störf og mönnun á mörgum sviðum minnkuð þar sem sem því hefur verið við komið.

Þær fjölmörgu aðgerðir sem ýmist hafa verið settar af stað eða eru í vinnslu og er ætlað að stuðla að hagræðingu í rekstri Hörpu, tengjast langt í frá aðeins hagræðingu í launakostnaði heldur einnig kostnaði við rekstur fasteignar, aukinni tekjuöflun og fleiru. Þessar aðgerðir voru þegar farnar að skila árangri á síðasta ári þegar rekstur Hörpu batnaði á milli ára í fyrsta sinn; þær eru enn í fullum gangi og í því efni er allt til endurskoðunar líkt og kom ítrekað fram á fundinum og eru það laun stjórnenda ekki undanskilin.
Á fundinum var einnig farið yfir staðreyndir er varða laun forstjóra Hörpu líkt og yfirlýsing stjórnar hefur rakið, þar sem fram kemur að þvert á fréttaflutning í síðustu viku voru laun forstjóra ekki hækkuð um 20% eftir 2 mánuði í starfi heldur tók hann á sig tímabundna launalækkun til 1. júlí. Ástæður þessa eru að fyrsti úrskurður kjararáðs um laun forstjóra Hörpu barst eftir að gengið hafði verið frá ráðningu og gilti sá úrskurður þar til að breytt ákvæði laga um kjararáð tóku gildi. Laun forstjóra Hörpu lækkuðu því á síðasta ári frá þeim forsendum sem lágu til grundvallar ráðningunni.
Harpa er gefandi og góður vinnustaður og telur sig greiða samkeppnishæf laun. Það er mjög leitt að sjá á eftir góðu fólki sem starfað hefur í Hörpu sem þjónustufulltrúar til lengri eða skemmri tíma en telur sig ekki eiga samleið með fyrirtækinu áfram, en 17 uppsagnir hafa borist. Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir og munu aðilar fara í framhaldinu yfir næstu skref. Framkvæmdastjórn Hörpu virðir að sjálfsögðu þessa ákvörðun þeirra þjónustufulltrúa sem sagt hafa upp störfum og óskar þeim velfarnaðar.“