Fjölskylda flugvélarþjófsins segist niðurbrotin Kristín Ólafsdóttir skrifar 12. ágúst 2018 17:47 Richard Russell var 29 ára. Vísir/AP
Fjökskylda mannsins sem stal mannlausri farþegaflugvél á Tacoma-flugvelli í Seattle og brotlenti henni segist miður sín vegna andláts hans, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá fjölskyldunni. Maðurinn hét Richard Russell, iðulega kallaður Beebo, og var 29 ára. Yfirvöld hafa ekki nafngreint Russell opinberlega en bæði fjölskylda hans og fjölmiðlar vestanhafs hafa birt nafn hans. Russell lést við brotlendingu flugvélarinnar á föstudagskvöld. „Þeir sem sitja heima og fylgjast með gætu átt erfitt með að trúa því en Beebo var hjartahlýr, hugulsamur maður. Það er ómögulegt að ná utan um manninn sem hann hafði að geyma í fréttatilkynningu. Hann var trúr eiginmaður, ástríkur sonur og góður vinur,“ segir í tilkynningu sem fjölskylda Russell sendi frá sér í gær. „Þetta er okkur algjört áfall. Við erum niðurbrotin vegna þessara atburða.“ Yfirlýsingu fjölskyldu Russells má sjá í heild í myndskeiðinu hér að neðan.Samkvæmt bloggsíðu sem Russell hélt úti var hann fæddur í Flórída en flutti sjö ára gamall til Alaska. Hann var búsettur ásamt eiginkou sinni í Washington-ríki. Bandaríska dagblaðið Seattle Times hafði eftir samstarfsfélaga Russellað hann hafi verið vel liðinn á vinnustaðnum en að lítið hefði farið fyrir honum.Sjá einnig: Flugvélaþjófurinn sagðist þurfa litla hjálp því hann hefði spilað tölvuleiki Russell hafði starfað hjá Horizon Ari-flugfélaginu í þrjú ár en félagið var eigandi flugvélarinnar sem hann stal. Starf Russell hjá félaginu fólst í því að færa flugvélar til á flugvellinum, þrífa þær og raða töskum í farangursgeymslu. Russell stal flugvélinni síðla kvölds á föstudag og flaug henni í um klukkustund. Hann brotlenti vélinni á Ketron-eyju í Puget-sundi og lést. Flugmálayfirvöld hafa upplýst að Russell hafði aðgang að vélinni sem starfsmaður flugfélagsins og hafði þar með leyfi til að vera í henni. Þá hafa samskipti Russell við starfsmann flugumferðarturnsins á Tacoma-flugvelli vakið gríðarlega athygli. Samantekt á því sem fór þeim á milli má lesa hér.
Bandaríkin Tengdar fréttir Flugvélarþjófurinn talinn af í brotlendingunni Ekki liggur fyrir hvernig manninum tókst að koma flugvélinni út á flugbraut og taka á loft án leyfis. 11. ágúst 2018 11:23 Stal mannlausri flugvél og brotlenti 29 ára gamall flugvirki sem stal vélinni er talinn hafa verið í sjálfsvígshugleiðingum. 11. ágúst 2018 08:36 Flugvélaþjófurinn sagðist þurfa litla hjálp því hann hefði spilað tölvuleiki Þetta fór á milli flugvélaþjófsins og flugumferðarstjóranna. 11. ágúst 2018 21:27 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Flugvélarþjófurinn talinn af í brotlendingunni Ekki liggur fyrir hvernig manninum tókst að koma flugvélinni út á flugbraut og taka á loft án leyfis. 11. ágúst 2018 11:23
Stal mannlausri flugvél og brotlenti 29 ára gamall flugvirki sem stal vélinni er talinn hafa verið í sjálfsvígshugleiðingum. 11. ágúst 2018 08:36
Flugvélaþjófurinn sagðist þurfa litla hjálp því hann hefði spilað tölvuleiki Þetta fór á milli flugvélaþjófsins og flugumferðarstjóranna. 11. ágúst 2018 21:27