Veggjöld og kostnaður af umferðarslysum rædd á Samgönguþingi Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 28. september 2017 07:00 Tölurnar voru teknar saman af Samgöngustofu og byggist á gögnum úr slysaskrá stofnunarinnar.
Kostnaður samfélagsins sem hlaust af umferðarslysum á helstu stofnæðum út frá höfuðborgarsvæðinu var tæpir 16 milljarðar á árunum 2012 til 2016. Á leiðinni milli Reykjavíkur og Selfoss nam áætlaður kostnaður vegna slysa á sama tímabili rúmlega sex milljörðum króna. Á leiðinni milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar var kostnaðurinn áætlaður fimm og hálfur milljarður og umferðarslys á milli Reykjavíkur og Borgarness kostuðu rúmlega fjóra milljarða. Tölurnar byggja á gögnum úr slysaskrá Samgöngustofu og voru teknar saman fyrir starfshóp um fjármögnun framkvæmda við helstu stofnleiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu. Starfshópurinn kynnir skýrslu sína og helstu tillögur á Samgönguþingi í dag. „Þessar tölur byggja á aðferðafræði sem áætlar kostnað samfélagsins frekar varlega,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshópsins, en lætur þess getið að hægt sé að velja fleiri en eina leið til að meta þennan kostnað en skiptar skoðanir séu um aðferðafræðina. Tölurnar ná yfir kostnað vegna starfa lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutningamanna og kostnað vegna eignatjóns, sjúkrahúskostnað, vinnutap og þess háttar. Tölurnar ná hins vegar ekki yfir óáþreifanlegt tjón vegna tapaðrar verðmætasköpunar sem einstaklingur hefði stuðlað að, hefði hann verið við fulla heilsu út líftímann. Aðspurður um áhugann á þessum tölum segir Eyjólfur að með þeim megi áætla hvað umbætur á þessum stofnæðum gætu verið lengi að borga sig upp. „Ef við gætum helmingað þessa slysatíðni með betri vegum gætu framkvæmdirnar borgað sig upp á þrjátíu árum út frá þessum þætti einum og sér,“ segir Eyjólfur. Starfshópurinn kynnir niðurstöður sínar á Samgönguþingi í dag en þær fela í sér tillögur um framkvæmdir á þessum helstu stofnæðum. Áætluð heildarfjárfesting er 56 milljarðar með virðisaukaskatti og mun starfshópurinn leggja til að veggjöld verði innheimt í einhverjum tilvikum. „Við erum að leggja til framkvæmdir sem við teljum raunhæft að ljúka á átta árum og setjum fram mat á því af hvaða stærðargráðu þetta gæti verið og hugmyndir að raunhæfri gjaldtöku.“ Aðspurður segir Eyjólfur Sundabraut ekki hafa verið til umræðu í þessari vinnu, þar sé of margt óunnið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira